

Frétt fyrir rétt
Forsaga málsins er að í fyrra óskaði blaðamaður Fréttablaðsins eftir upplýsingum frá bankanum um samning sem Már Guðmundsson bankastjóri gerði við Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, þáverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans, um styrk og laun í námsleyfi meðan hún sótti dýrt nám í Bandaríkjunum. Ingibjörg kom ekki aftur til starfa fyrir bankann að námi loknu. Samningurinn var hugsaður sem starfslokasamningur. Verðmæti samningsins var hátt á annan tug milljóna, hefur blaðið eftir heimildum.
Bankinn hafnaði beiðni blaðamannsins um upplýsingar um samninginn. Blaðamaðurinn sneri sér þá til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Nefndin úrskurðaði tæpum átta mánuðum eftir fyrstu beiðnina að bankinn væri skyldugur að afhenda blaðamanninum starfslokasamning Ingibjargar. Því vildi bankinn ekki una og óskaði eftir frestun á réttaráhrifunum meðan málið yrði rekið fyrir dómstólum. Nefndin varð við þeirri beiðni í síðustu viku og dómsmál gegn blaðamanni Fréttablaðsins verður þingfest eftir helgi.
Þessi furðulega vegferð Seðlabanka Íslands, opinberrar stofnunar, er ekki einsdæmi. Leitun er að stofnun sem gerir blaðamönnum erfiðara fyrir að afla upplýsinga. Oft hefur þurft að gera hlé á fréttaflutningi vegna tregðu stofnana við að upplýsa um brýn mál. Fjölmiðlarnir þurfa svo að standa undir dýrum málarekstri til að fá upplýsingar sem varða almenning. Í þessu tilfelli til að forðast skýringu á því að skattgreiðendur borgi hátt á annan tug milljóna fyrir starfslok embættismanns.
Bankinn, undir forystu Más, hefur stofnað til fjölda mála sem ekki þola skoðun. Alvarlegast er að fjöldi mála hefur skaðað einstaklinga og fyrirtæki – bankinn hefur verið gerður afturreka með tugi mála eftir kærur. Svo hefur hann útdeilt stjórnvaldssektum á fjölda fyrirtækja sem dómstólar fella úr gildi jafnharðan.
Alltaf stendur á svörum frá bankanum. Minni mál, líkt og kaup á jólagjöfum til starfsmanna og spurningar um af hverju verk eftir Gunnlaug Blöndal var fjarlægt af einni skrifstofu bankans, vefjast ekki síður fyrir stjórnendum en stóru málin.
Bankaráðið, sem á að veita stjórnendum bankans aðhald, stendur ekki í stykkinu. Stjórnmálamenn hafa skilað auðu og leyft embættismönnum að ganga sjálfala. Það ríkir óstjórn í bankanum.
Seðlabankinn skýlir sér bak við sjálfstæði, en það nær til peningastefnunnar en ekki rekstrar. Það gefur honum ekki heimild til að haga sér eins og ríki í ríkinu.
Tími er til kominn að seðlabankastjóri dragi höfuðið upp úr sandinum. Hann getur alveg frestað hinu óumflýjanlega en um óstjórnina í Seðlabankanum verður fjallað þó að þóttafullum stjórnendum bankans líki það illa.
Skoðun

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar