Samfylkingin eykur fylgi sitt um þriðjung Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. ágúst 2019 12:05 Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. visir/vilhelm
Samfylkingin bætir við sig rúmlega fjórum prósentustigum í nýrri könnun MMR, samanborið við fylgi flokksins í júlímánuði. Er nú svo komið að Samfylkingin nýtur næst mests fylgis, 16,8 prósent, á eftir Sjálfstæðisflokki sem mælist með 19,1 prósent stuðning rétt eins og í fyrri mánuði. Fylgi Pírata hefur, rétt eins og Samfylkingarinnar, sveiflast mikið frá fyrri könnun. Fylgi Pírata mældist nú 11,3 prósent en var um 14,1 prósent í síðustu könnun og hefur stuðningurinn við flokkinn því dregist saman um nær 3 prósentustig á milli mánaða.Aðrar sveiflur eru minni. Framsókn bætur við sig rúmum tveimur prósentustigum og mælist stuðningurinn nú 10,4 prósent, Flokkur fólksins tapar um 2 prósentustiga stuðningi milli mánaða og þá minnkar stuðningur Vinstri grænna um eitt prósentustig. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 38,8 prósent, samanborið við 40,3 prósent í síðustu könnun. Alls svöruðu 990 manns könnun MMR, sem framkvæmd var dagana 12. til 19. ágúst. Álitsgjafar MMR eru sagðir valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma. Nánari útlistun á niðurstöðum MMR má sjá hér að neðan.Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 19,1% og mældist 19,1% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,8% og mældist 12,4% í síðustu könnun. Fylgi Miðflokksins mældist nú 13,0% og mældist 12,4% í síðustu könnnun. Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,5% og mældist 12,5% í síðustu könnun. Fylgi Pírata mældist nú 11,3% og mældist 14,1% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,4% og mældist 8,3% í síðustu könnun. Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,3% og mældist 9,9% í síðustu könnun. Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,1% og mældist 6,8% í síðustu könnun. Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 2,9% og mældist 3,4% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist 1,6% samanlagt.
Alþingi Samfylkingin Mest lesið Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal Innlent Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Innlent Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Rekstur hestaleigu stöðvaður Innlent Eyjar og sker tilheyra næstu jörð Innlent Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Innlent „Besta leiðin upp úr fátækt er að hjálpa fólki að eignast“ Innlent Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Innlent Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Innlent Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Erlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir konunni Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Annað veiðifélag rannsakað vegna ólöglegs fiskeldis Breskur dómur grafi undan tilverurétti trans fólks Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Rekstur hestaleigu stöðvaður Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Örtröð í Leifsstöð og umdeildur hæstaréttardómur í Bretlandi Yngstu börnin sem hefja innritun í haust fjórtán mánaða Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal „Besta leiðin upp úr fátækt er að hjálpa fólki að eignast“ Eyjar og sker tilheyra næstu jörð Hvítri Toyotu stolið í Mosfellsbæ Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Leikhúsþýðingar Vigdísar gefnar út Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Brýnt að stækka Samgöngusafnið í Skógum „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Tveir „galdramenn“ í haldi Uggandi yfir innflutningi: Fleira ungt fólk leitar á Vog Ungt fólk sækir meira á Vog og þaulskipulögð þjófagengi Skógar Reykjavíkur séu hundruð milljarða króna virði Nýju hættumatskorti ætlað að ná betur utan um hættu utan Reykjanesskagans Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Lengja opnunartímann aftur Ákærður fyrir að reyna að svipta tvo lífi Stefnir í annað metár í frávísunum Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Sjá meira