
Sýndu stuðning í verki - vertu Regnbogavinur!
Samtökin ’78 voru stofnuð árið 1978 og eru því orðin 41 árs. Samtökin starfa allt árið um kring og eru markmið þeirra og stefna enn þau sömu og við stofnun, að hinsegin fólk njóti fullra félagslegra og lagalegra réttinda og sé sýnilegt í íslensku samfélagi.
Samtökin ’78 hafa verið rekin af sjálfboðaliðum nær alla tíð og opinberu fé var ekki að skipta fyrr en fyrir um áratug. Af þessum sökum var lítið svigrúm til þeirra uppbyggingar sem nauðsynleg er félaga- og mannréttindasamtökum á borð við Samtökin ’78.
Í dag eru starfsmenn Samtakanna þrír auk sjö ráðgjafa í verktakavinnu. Í samvinnu við Reykjarvíkurborg reka Samtökin einnig félagsmiðstöð fyrir ungmenni. Þó margt hafi áunnist á undanförnum áratug eru enn mörg verkefni sem vinna þarf í sjálfboðavinnu. Það sem fjármagnað er að hluta með samningum er ráðgjöf til hinsegin fólks, fræðsla til skóla og opinberra stofnanna og hluti starfs félagsmiðstöðvarinnar. Það sem Samtökin þurfa sjálf að fjármagna eru mörg og mikilvæg verkefni, og í raun mun fleiri en samtökin geta nú sinnt.
Þau verkefni sem eru vanfjármögnuð eða aðeins fjármögnuð að litlum hluta eru ærin og mörg. Þar má nefna þróun hinsegin vinnustaðastuðuls fyrir fyrirtæki, fræðslustarfsemi innan lögreglunnar, ráðgjöf til hinsegin fólks sem leitar að alþjóðlegri vernd, útgáfa fræðsluefnis og myndefnis, þýðingar á erlendu efni, ráðgjöf í ættleiðingarmálum, lögfræðiráðgjöf, þróun alþjóðastefnu, fjölgun ráðgjafahópa og kynheilbrigðismál. Við viljum efla rannsóknir á stöðu hinsegin fólks, efla listir og menningu hinsegin fólks, skrá og gefa út sögu Samtakanna og hinsegin fólks á Íslandi, styrkja alþjóðastarf og þá sérstaklega við norðurlöndin. Auk alls þessa er allt viðhald húsnæðis og rekstur þess, rekstur félagsheimilis, og fleira, og fleira. Verkefni Samtakanna eru fjölbreytt og oft viðkvæm, því þarf að standa rétt og faglega að verki svo Samtökin geti fjárfest til framtíðar. Það fé sem kemur inn frá hinu opinbera eru bara dropi í hinsegin hafið.
Í þessari viku opnuðu Samtökin fyrir skráningar Regnbogavina. Regnbogavinir eru þau sem skrá sig sem mánaðarlegir styrktaraðilar og styrkja þannig Samtökin allt árið um kring. Það er félagasamtökum eins og Samtökunum ‘78 mikilvægt að vera fjárhagslega sjálfstæð og að þurfa ekki einungis að reiða sig á opinbert fé sem bundið er í þjónustusamninga.
Það hefur aldrei verið jafneinfalt að styrkja starf Samtakanna ‘78. Allar upplýsingar má finna á forsíðu www.samtokin78.is
Sýndu stuðning í verki. Vertu Regnbogavinur.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtakanna '78.
Skoðun

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar