

Breytingahjólið á yfirsnúningi
Það er alltaf einhver sem ryður brautina og gerist leiðtogi breytinganna og eru nokkrar ágætar aðferðir til þess. Í fyrsta lagi geta fyrirtæki verið fyrst á markað með nýtt viðskiptamódel sem hvetja aðra í greininni til að fylgja á eftir. Í öðru lagi uppgötva þau nýja tækni eða bæta núverandi tækni til þess að lækka kostnað og ýta samkeppninni frá eldri og minna sjálbærri tækni. Í þriðja lagi geta fyrirtæki breytt skynjun viðskiptavina til sjálfbærni, og hvatt þá til þess að setja kröfur um sjálfbærni vara. Í fjórða lagi er mikilvægt að virkja starfsmenn, sýna þeim hvernig sjálfbæra viðskiptamódelið virkar, veita umbun og hugsanlega sannfæra samkeppnisaðila eða aðra í greininni til þess að fylgja. Í fimmta lagi þarf að sannfæra fjárfesta um að sjálfbær hegðun fyrirtækja sé betri fyrir afkomuna og hvetja þá til þess að krefjast sjálfbærni af öllum fyrirtækjum sem þeir fjárfesta í.
Í einhverjum tilvikum hefur breytt og bætt hegðun fyrirtækja áhrif á samkeppnisaðila. Gott dæmi um það er nýtt betur þjappað og umhverfisvænna þvottaefni hjá Walmart. Minni umbúðir spöruðu hillupláss en verðið átti að vera það saman og fyrir stærri pakkningu. Stjórnendur Walmart höfðu áhyggjur af því að þeim tækist ekki að selja minni pakkninguna á sama verði og þá stærri því fólk hefði tilhneigingu til að horfa á verð og stærð á sama tíma. Ef viðskiptavinir báru saman þvottaefni frá öðrum framleiðendum var pakkningin augljóslega minni og því sagði heilinn þeim að það ætti að kosta minna. Þeir brugðu því á það ráð að hvetja samkeppnisaðila sína til að feta í fótspor þeirra.
Til að gera langa sögu stutta þá tókst Walmart að ná markmiðum sínum, flutningskostnaður minnkaði og fyrirtækið sparaði 1,5 milljarða lítra af vatni, 43 milljón kg af plastefni og 57 milljón kg af pappa. Walmart var í upphafi með 25% markaðshlutdeild og þeir lögðu áherslu að fá aðra framleiðendur og samkeppnisaðila með sér í verkefnið. Stjórnendur vissu sem var að þeirra aðgerðir á svo stórum skala myndu hafa mikil áhrif á umhverfið og þannig fengu þeir hjól breytinganna til að snúast hraðar. Þeir gengu enn lengra og fengu sína birgja til þessað snúa við blaðinu. Árið 2007 var þjappað þvottaefni aðeins 22,9% af markaðnum en ári seinna var það komið upp í 76,3%. Þannig voru áhrifin margfölduð. Á sama hátt verða breytingar að veruleika þegar einstaklingar, fyrirtæki, sveitarfélög og stjórnvöld taka höndum saman þá fer hjól breytinganna á fullt skrið. Hvernig væri að bretta upp ermar því það er líka fjárhagslega hagkvæmara.
Höfundur er stjórnendaráðgjafi og framkvæmdastjóri Podium ehf.
Skoðun

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar