Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir andstæðinga Boris Johnson ýta Bretum í átt að ómögulegri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu í viðræðum sínum um útgöngu.
Þetta kemur fram í
grein Sigmundar sem birtist í breska miðlinum The Spectator á dögunum. Í grein sinni furðar Sigmundur, eða David Gunnlaugsson eins og hann er þar titlaður, sig á því hvernig nokkur maður telji að núverandi staða geti skilað sér í ákjósanlegri niðurstöðu fyrir bresk stjórnvöld.
Um leið hrósar Sigmundur þar Boris Johnson og hans fólki fyrir frammistöðu sína við þessar erfiðu aðstæður:
„Boris Johnson hefur nú skapað sér og stjórn sinni þá stöðu sem fyrri ríkisstjórn hefði átt að vera búin að gera fyrir þremur árum í samræðum sínum við ESB. Hann hefur gert öllum það ljóst að hann sé ekki í neinni stöðu til að gefa eftir.“
Sjá einnig: Veitti Bretum ráð vegna Brexit í beinni á Sky Í
stöðuuppfærslu sinni á Facebook þar sem Sigmundur deilir pistli sínum í The Spectator, segir hann að með honum vilji hann gera grein fyrir því að ef „haldi núverandi stjórn sínu stríki og setji lýðræði ofar kerfisræði er hægt komast yfir hindranirnar og klára Brexit.“
„Nú eru liðin meira en 3 ár frá því að breskir kjósendur ákváðu að segja skilið við Evrópusambandið. Allan þann tíma hafa stofnanir og einstaklingar innan landsins og utan leitast við að koma í veg fyrir að lýðræðisleg niðurstaða næði fram að ganga,“ sagði Sigmundur jafnframt í færslunni.
„Þótt við Íslendingar höfum átt í útistöðum við bresk stjórnvöld á liðnum áratugum hljótum við að vilja að bresku þjóðinni (eins og öllum þjóðum) vegni vel og lýðræðið fái að njóta sín.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sigmundur tjáir sig um Brexit í breskum fjölmiðlum en fyrir rúmri viku hvatti hann Breta í viðtali á Sky News til að sækja um tímabundna aðild að Evrópska efnahagssvæðinu eftir að þeir ganga úr Evrópusambandinu.