Ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt, þá er það líklega þannig; rugl, ergelsi og firra. Og svo er með þetta sem er einskonar vírus eða óværa.
Standard Facebook-ormur
Ágúst Jóhann Auðunsson er deildarstjóri Kerfisþjónustu Sýnar og Vísir spurði hann hvað þetta væri eiginlega? Hann sagðist ekki finna neitt staðfest um þetta tiltekna fyrirbæri, líklega væri þetta einhver óværa. „Annars væri ég alveg til í þetta undralyf ef þú kemst að öðru,“ segir Ágúst Jóhann léttur í bragði.„Líklegast er þetta standard „Facebook Ormur“ sem sækir forritsstubb við smell og póstar þá sambærilega á FB síðu viðkomandi og svo koll af kolli. Mögulega er þarna eitthvað verra á ferðinni Keylogger, vírus, botnet og svo framvegis sem er að safna og senda uppl/innslátt notenda til höfundar.“

„Að tilkynna til Facebook er nokkuð sem allir sem verða að gera til að almenningur eigi séns í viðureigninni við óværurnar,“ segir Ágúst Jóhann sem vill brýna fyrir mannskapnum á netinu almenna skynsemi í umgengni við óværu af þessu tagi. Þar séu engar töfralausnir í boði.
Uppfæra, keyra og skanna
Er vert að henda þeim af vinalista sem merkir mann í slíkum pósti?„Það er óþarfi, nema viðkomandi sé endurtekið að pósta óværum, frekar að vera með varann á varðandi öll innslög frá viðkomandi, sem og frá öllum öðrum.“
Hvað er best fyrir þá sem eru að dreifa þessu að gera?
„Uppfæra, keyra og skanna tölvuna með vírusvörn. Uppfæra stýrikerfi og netvafra. Stofna beiðni hjá FB vegna sýkingar. Fylgjast með næstu daga þegar betur kemur í ljós hvaða óværa þetta er, og bregðast við í samræmi við það.“
Ágúst Jóhann bendir á að menn geti sé hvað þeir hafa verið að gera með því að fara á: „https://www.facebook.com/me/allactivity Activity log“. Þar sjá menn hvort þeir séu enn þá að senda út einhverjar óværur. Þá má lesa sig nánar um vírusa hér.