

Stingum í samband
Í loftslagsstefnu stjórnvalda sem kynnt var fyrir um ári er sett fram það markmið að banna nýskráningar bíla sem notast eingöngu við jarðefnaeldsneyti frá árinu 2030. Losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum nálgast nú milljón tonn á ári og er um þriðjungur þeirrar losunar sem fellur undir beina ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Árið 2030 verður líklega aðeins rými fyrir 500 þúsund tonna losun og þarf því að helminga losunina á næsta áratug.
Það er því afar mikilvægt að stjórnvöld hraði vinnu sinni við uppbyggingu innviða til að gera öllum þeim fjölda sem vill skipta yfir í vistvæna bíla það kleift. Íslenski bílaflotinn er gamall en meðalaldurinn var rúm tólf ár á síðasta ári sem er meðal þess hæsta í Evrópu. Hér er því bæði tækifæri og þörf á hraðri endurnýjun bílaflotans með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á umhverfi og umferðaröryggi. Ein leið sem nefnd hefur verið og er að finna í stefnu stjórnvalda er að veittir yrðu sérstakir styrkir til úreldingar eldri og eyðslusamari bíla ef vistvænn er keyptur í staðinn. Það er leið sem vert er að skoða og gæti orðið til þess að hraða orkuskiptum.
Ef rýnt er í niðurstöður könnunarinnar vekur það athygli að íbúar á Vestfjörðum og Austurlandi eru ólíklegastir til að velja vistvænan bíl við næstu bílakaup. Ef horft er á kort af hleðslustöðvum landsins koma þær niðurstöður hins vegar ekki á óvart. Þótt hægt sé að keyra hringinn með nokkuð þægilegum hætti á rafmagnsbíl, með smá skipulagningu, þarf að vinna áfram að þéttingu nets hraðhleðslustöðva. Þar hafa hlutar Vestfjarða og Norðausturhornið orðið út undan enn sem komið er. Það þarf að gæta jafnræðis milli landshluta þegar kemur að uppbyggingu innviða fyrir vistvæna bíla.
Það sést glöggt á auglýsingum bílaumboðanna að undanförnu að áherslan á vistvæna bíla er að aukast mikið. Framþróunin er hröð og sífellt fleiri tegundir í boði. Raunar er það svo að það sem af er ári hafa vistvænir bílar verið rúm 22 prósent af nýskráðum fólksbílum. Hlutirnir eru því að þróast í rétta átt en tíminn sem við höfum til stefnu er ekki mikill.
Skoðun

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar