Jemenskir húta-uppreisnarmenn, sem eru hallir undir Írani, hafa lýst yfir ábyrgð á árásunum og segja að vænta megi fleiri árása í framtíðinni. Ráðist var á tvær stærstu olíuframleiðslustöðvar Sádi-Arabíu. Stöðvarnar eru í eigu ríkisfyrirtækisins Aramco. Sú stærri er sú stærsta í heimi og framleiðir um eitt prósent allra olíubirgða heims.
„Tehran stendur á bak við naumlega 100 árásir á Sádi-Arabíu á meðan Rouhani og Zarif þykjast standa í einhvers konar ríkiserindrekstri,“ tísti Pompeo fyrr í dag. Á hann þar við Hassan Rohani, forseta Írans, og Javad Zarif utanríkisráðherra.
Tehran is behind nearly 100 attacks on Saudi Arabia while Rouhani and Zarif pretend to engage in diplomacy. Amid all the calls for de-escalation, Iran has now launched an unprecedented attack on the world’s energy supply. There is no evidence the attacks came from Yemen.
— Secretary Pompeo (@SecPompeo) September 14, 2019
Áður en Pompeo lét þessi orð falla á Twitter sagði Hvíta húsið í yfirlýsingu að Trump forseti hafi átt samtal við Mohammad bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu. Er hann sagður hafa boðið fram stuðning Bandaríkjanna við að „verja Sádi-Arabíu.“
Sádi-Arabía styður jemensk stjórnvöld í baráttu sinni við Hútana, sem á móti eru studdir af Íran, en borgarastyrjöld milli fylkinga hefur staðið yfir síðan árið 2015.
„Óábyrg einföldun“
Chris Murphy, þingmaður Demókrataflokksins og meðlimur utanríkismálanefndar þingsins, svaraði Pompeo á Twitter þar sem hann gagnrýndi orð utanríkisráðherrans.„Þetta er ótrúlega óábyrg einföldun og það er svona sem við komum okkur í heimskuleg stríð eftir hentisemi. Sádi-Arabía og Hútarnir eiga í stríði. Sádar ráðast á Hútana og Hútarnir svara í sömu mynt. Íranir styðja við Hútana og hafa verið lélegir leikarar, en þetta er ekki jafn einfalt og að segja Hútar = Íran.“
This is such irresponsible simplification and it’s how we get into dumb wars of choice
The Saudis and Houthis are at war. The Saudis attack the Houthis and the Houthis attack back. Iran is backing the Houthis and has been a bad actor, but it’s just not as simple as Houthis=Iran. https://t.co/BFiO1AQe2B
— Chris Murphy (@ChrisMurphyCT) September 14, 2019
Ekki liggur fyrir hvort manntjón varð í árásunum tveimur, en mikill eldur braust út í kjölfar þeirra. Viðbragðsaðilum tókst þó fljótt að koma böndum á hann.