Peningaþvættishneykslið er stærsta fjárglæpamál sem komið hefur upp á Norðurlöndunum.
Fjölskylda hins 56 ára Aivar Rehe tilkynnti um hvarf hans í eistnesku höfuðborginni Tallinn á mánudag. Lögregla sagðist þá óttast um líf Rehe, en að ekki væri talið að einhver hafi komið að hvarfinu. Lögregla notaðist við leitarhunda og dróna á mánudag og í gær.
Fé frá fyrrverandi Sovétlýðveldum
Yfirvöld í Bandaríkjunum, Eistlandi, Danmörku og Frakklandi hafa nú Danske Bank til rannsóknar vegna gruns um að peningaþvætti. Hafi gríðarlega mikið fé frá Rússlandi, Moldóvu og Aserbaídsjan verið þvættað í gegnum útibúi bankans.Rehe hafði áður sagt að farið hafi verið að öllum reglum bankans um eftirlit. Saksóknarar í Eistlandi segir að alls séu tíu fyrrverandi starfsmenn bankans í Eistlandi grunaðir um aðild að peningingaþvættinu, aðallega lægra settir, og að Rehe væri ekki einn þeirra.
Fjölmargir háttsettir menn innan bankans hafa þurft að yfirgefa Danske Bank og þannig er Thomas Borgen, fyrrverandi forstjóri bankans, í hópi þeirra sem dönsk yfirvöld hafa ákært vegna málsins.