Formúlu Tvö ökuþórinn Juan Manuel Correa er kominn úr dái eftir þrjár vikur. Hann hafði verið í dái í þrjár vikur eftir alvarlegt slys.
Correa lenti í slysi á Spa brautinni fyrir þremur vikum þegar Formúlu 1 kappaksturinn fór þar fram. Franski ökuþórinn Anthoine Hubert lést í slysinu.
Slysið var fyrsta banaslysið tengt Formúlu 1 síðan Ayrton Senna og Roland Ratzenberger létust árið 1994.
Correa varð fyrir mænuskaða í slysinu ásamt því að hann slasaðist illa á báðum fótleggjum.
Hann er enn illa haldinn á sjúkrahúsi í London og sagði í tilkynningu frá fjölskyldu hans að læknateymið væri enn í kapphlaupi við tímann.
Honum hefur verið haldið í dái síðustu þrjár vikurnar, en var tekinn úr því á föstudag.
Correa þarf að fara í aðgerð á fótleggjum en ekki hefur verið hægt að fara í aðgerðina þar sem lungu Correa eru ekki orðin nógu sterk.
