Sögukennarinn Brynjar Karl Óttarsson fer fyrir fjögurra manna teymi sem kallar sig Varðveislumenn minjanna. Í Hlíðarfjalli, norðan við skíðasvæðið, hafa þeir fundið ýmis konar merki um veru breskra- og bandaríska hermanna á tímum Seinni heimstyrjaldarinnar. Þar á meðal um 300 skothylki, en einnig margt annað
„Sprengjubrot og svo eitt og annað sem tengist veru þeirra hérna. Þeir settu upp búðir hérna, hluta af kabyssum sem þeir notuðu til að hita upp tjöldin og svo persónulega muni. Það hafa þrír peningar komið í ljós sem er svolítið skemmtilegt,“ segir Brynjar Karl í samtali við fréttamann eftir að þeir klöngruðust upp rætur Hlíðarfjalls.

Stríðsminjarnar séu hálfgert olnbogabarn
Félagarnir eru með nefið ofan í jörðinni við leitina og eru orðnir ansi lunknir í að koma auga á stríðsminjarnar sem þó eru ekki nógu gamlar til að teljast forngripir eða leifar.„Það er svolítið dapurlegt hvernig þetta er með þessar stríðsminjar að þetta er hálfgert olnbogabarn. Þetta er ekki orðið nógu gamalt til að falla undir lög og reglugerðir um fornleifar, ég held að það þurfi að vera orðið 100 ára gamalt. Þetta er nú að nálgast það en af því að það er ekki orðið 100 ára þá er þetta bara eins og hvert annað drasl út í náttúrunni,“ segir Brynjar Karl.

„Út frá myndinni gátu þeir ekki metið það þannig að þetta væri hættulaust þannig að þeir komu hérna upp eftir. En svo eftir að hafa rýnt í þetta og skoðað var þetta alveg hættulaust en þetta var einhver hluti sprengikúla,“ segir Brynjar Karl.
Þannig að það er kannski vissara að hafa augun hjá sér úti í náttúrunni?
„Það er nefnilega málið og kannski boðskapur sem er á gætt að koma á framfæri hér. Nú erum við farin að labba upp til fjalla og inn til dala kannski meira en áður. Fólk er alls staðar að ganga. Að vera á varðbergi,“ segir Brynjar Karl.
Vonir Varðveislumannanna standa til að einn daginn verði hægt að sýna stríðsminjarnar
„Þetta eru auðvitað bara minjar um mjög merkilega tíma í okkar sögu og auðvitað á að varðveita þetta.“
