Íslandsmeistararnir völtuðu yfir Grindavík Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. október 2019 21:39 Valskonur fagna sigri á Íslandsmótinu í fyrra. Vísir/Daníel
Íslandsmeistarar Vals unnu stórsigur á Grindavík í fyrstu umferð Domino's deildar kvenna í kvöld. Haukar höfðu betur gegn Skallagrími og Snæfell vann Breiðablik. Valskonur tóku strax forystuna í leiknum í Grindavík og voru 40-27 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik juku þær forystu sína hægt og þétt og unnu að lokum 49-96 sigur. Kiana Johnson var stigahæstur í liði Vals með 23 stig og 11 stoðsendingar. Helena Sverrisdóttir skoraði 19 stig. Kamilah Jackson var stigahæst í liði Grindavíkur með 15 stig. Snæfell tók á móti Breiðabliki og vann þægilegan sigur. Heimakonur tóku forystuna í upphafi leiks og héldu henni það sem eftir lifði. Þær voru með 33-24 forskot í hálfleik og lauk leiknum með 76-48 sigri Snæfells. Veera Pirttinen var stigahæst í liði Snæfells með 20 stig, stigi meira en Anna Soffía Lárusdóttir sem skoraði 19. Í liði Blika var Violet Morrow stigahæst með 19 stig. Í Borgarnesi áttust Skallagrímur og Haukar við og voru það gestirnir úr Hafnarfirði sem fóru með sigur. Skallagrímur byrjaði leikinn betur en Haukar náðu að jafna og var staðan í hálfleik 39-38 fyrir Hauka. Leikurinn var mjög jafn í seinni hálfleik en fór að lokum svo að Haukar unnu 72-66 sigur. Lovísa Björt Henningsdóttir fór fyrir Haukum og skoraði 18 stig. Hjá Skallagrími var Keira Robinson stigahæst með 19.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Sport Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Sport Hefði fengið 20 ára bann fyrir samskonar mál og Sinner Sport Max svaraði Marko fullum hálsi Formúla 1 „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Sport „Hér er allt mögulegt“ Fótbolti Van Dijk fær 68 milljónir á viku Enski boltinn Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Íslenski boltinn Heilinn fer að „borða“ sjálfan sig í maraþonhlaupi Sport Fleiri fréttir Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Hafa rekið þrjá þjálfara síðan Durant kom til Phoenix Suns „Vorum að veita fría sálfræðihjálp fyrir heilt samfélag“ „Við bara brotnum“ „Eru greinilega lið sem eru betri en við“ „Kominn tími fyrir þá að fara í háttinn“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 82-74 | Meistararnir sendir í sumarfrí „Stuðningsmenn Dallas vilja bara ekki fyrirgefa þetta“ Spilaði í sex sekúndur til að missa ekki úr leik Dani komin alla leið í úrslitaeinvígið um titilinn „Þurfum að halda betur fókus þegar það hægist á leiknum“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 75-70 | Valur sendi Þórsara í sumarfrí Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-86 | Frábær frammistaða Tinnu Guðrúnar skilaði Haukum oddaleik Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-86 | Frábær frammistaða Tinnu Guðrúnar skilaði Haukum oddaleik