Frá þessu er greint í færslu á Facebook-síðu Umhverfisstofnunar þar sem segir að um sé að ræða sundlirfur fuglablóðagða sem valda útbrotum þegar farið er ofan í vatn þar sem lirfurnar eru til staðar.
„Kláðabólur myndast þegar ofnæmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar. Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að komast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmannalaugum,“ segir í tilkynningu Umhverfisstofnunar.
Stofnunin hafði samráð við sóttvarnalækni og byggist niðurstaða á greiningum frá Tilraunastöðinni á Keldum. Þá vinnur Umhverfisstofnun nú að því í samráði við fagaðila að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina í Landmannalaugum.
Ekki hefur tekist að koma í veg fyrir það á þessu ári og þurfa baðgestir því að hafa það í huga að enn er möguleiki á að smitast af sundmannakláða.
Nánari upplýsingar um sundmannakláða má nálgast á vef Tilraunastöðvarinnar á Keldum.