Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að starfsmaður Airport Associates á Keflavíkurflugvelli hefði verið handtekinn ásamt tveimur fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins. Mennirnir eru fæddir árið 1991 og 1992 samkvæmt heimildum fréttastofu. Húsleit mun hafa farið fram í fyrirtækinu.
Gæsluvarðhald yfir einum mannanna var fellt úr gildi af Landsrétti og úrskurðurinn birtur á vef réttarins í kvöld. Þar kemur fram að lögreglumenn á Suðurnesjum hafi veit bifreið athygli sem ekið var suður Krossmóa 4 í Reykjanesbæ þann 23. október. Í viðræðum lögreglu við ökumann hafi vaknað grunur um að hann væri undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Maðurinn var í framhaldinu handtekinn. Ekkert fannst í bíl mannsins en við leit á honum fundust rúmlega 62 þúsund krónur í reiðufé og lítil skeið sem lögregla telur að sé notuð til neyslu fíkniefna. Þá fundust í fótum hans fimm stafræn herbergislyklakort. Tvö ómerkt, einn merktur „…. geymsla“ og tveir með númerið 103.

Hægt að framleiða tugi kílóa af amfetamíni
Við leit á heimili mannsins fannst svo mikið magn fíkniefna. Annars vegar sex lítrar af amfetamínbasa sem má áætla að hægt sé að framleiða 30-60 kíló af amfetamíni úr. Hins vegar 2,1 kíló af kókaíni í pappakassa og rauðri íþróttatösku fyrir ofan loftklæðningu.Þá hafi einnig fundist í skókassa á gólfi í fataskáp íbúðarinnar þrjú töfluglös merkt Xanax, fjórtán gelbréf merkt „Kamagra“ og poki af óþekktu hvítu dufti. Einnig hafi fundist rafstuðsvasaljós undir rúmi íbúðarinnar.
Við skýrslutöku lögreglu viðurkenndi maðurinn að stunda sölu fíkniefna. Vísaði hann á annan mann sem hefði látið hann hafa milljón króna í reiðufé. Kvittun fyrir kaupum á evrum fyrir þá upphæð fannst í íbúð mannsins. Var sá einstaklingur handtekinn.

Milljón í reiðufé
Lögregla telur rökstuddan grun um að þriðji maðurinn eigi aðild að málinu með því að aðstoða við fjármögnun á flutningum á efnunum til landsins. Vísar lögregla til tengsla mannanna hvað þetta atriði varðar í kröfugerð sinni.Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, gat ekki tjáð sig um tengsl mannanna við flugvöllinn í samtali við fréttastofu í kvöld. Hann segir rannsókn málsins enn í fullum gangi en vel á veg komna.
Mennirnir þrír voru allir úrskurðaðir í gæsluvarðhald í síðustu viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Úrskurður yfir þriðja manninum var felldur úr gildi í Landsrétti og gengur hann því laus.
Í greinagerð lögreglu kemur fram að rannsaka þurfi magn og styrkleika hinna meintu fíkniefna betur. Sömuleiðis kanna tengsl við hugsanlega vitorðsmenn hér á landi og erlendis. Jafnframt eigi eftir að afla upplýsinga um inneign mannanna á banka og greina farsímagögn.
Uppfært: Úrskurður Landsréttar var birtur á vef dómstólana í kvöld en er nú ekki að finna lengur á þeim vef.