Formúlan ætti að vera byrjuðu fyrir mörgum mánuðum en hún átti að hefjast þegar kórónufaraldurinn stoppaði alla íþróttaviðburði í marsmánuði.
Fyrsti kappakstur tímabilsins átti að fara fram í Ástralíu 15. mars en keppni var frestað aðeins nokkrum klukkutímum fyrir ræsingu.
Öllum keppnum í formúlu eitt var síðan frestað og fljótlega varð það ljóst að ekki væri hægt að koma þeim öllum fyrir þegar keppni gæti hafist á nýjan leik.
The 2020 Formula 1 season is poised to start on July 5 with the Austrian GP the first of eight behind-closed-door European races in 10 weeks.
— Sky Sports (@SkySports) June 2, 2020
Formúlu eitt tímabilið hefst 5. júlí næstkomandi með keppni í Austurríki og átta keppnir munu fara fram á tíu vikum. Engir áhorfendur verða leyfðir á þessum keppnum.
Allar þessar keppni munu fara fram í Evrópu og á sex brautum. Það fara nefnilega fram tvær keppnir í Austurríki og á Silverstone brautinni í Englandi.
Átta keppnir eru algjört lágmark til krýna heimsmeistara í formúlu eitt en forráðamenn formúlunnar ætla sér að bæta við keppnum seinna á tímabilinu. Tímabilið mun því fara eitthvað lengra inn á veturinn.
- 2020 tímabilið í formúlu eitt:
- 5. júlí - Spielberg brautin í Austurríki
- 12. júlí - Spielberg brautin í Austurríki
- 19. júlí - Búdapest í Ungverjalandi
- 2. ágúst - Silverstone brautin í Bretlandi
- 9. ágúst - Silverstone brautin í Bretlandi
- 16. ágúst - Barcelona á Spáni
- 30. ágúst - Spa-Francorchamps brautin í Belgíu
- 6. september - Monza brautin á Ítalíu