Æfingaleikur Man. United gegn Stoke flautaður af á síðustu stundu vegna kórónuveirusmits Anton Ingi Leifsson skrifar 10. júní 2020 09:00 Frá æfingu Man. United á dögunum, á Carrington æfingasvæðinu, þar sem leikurinn átti að fara fram. vísir/getty
Það var mikil dramatík á æfingasvæði Manchester United í gær er liðið hafði skipulagt æfingaleik gegn Stoke. Kórónuveirusmit greindist hjá Stoke og því var hætt við leikinn, sem átti að fara fram bak við luktar dyr. United átti að mæta B-deildarliðinu á æfingasvæði sínu, Carrington, í gær. Samkvæmt heimildum enskra miðla í gær fékk Stoke meldingu frá ensku B-deildinni að einn úr leikmannahópnum hafi greinst smitaður rétt eftir að þeir komu á æfingasvæði United. Því voru bæði lið sammála um það að best væri að hætta við leikinn og leikmönnum Stoke var skipað að flýta sér til síns heima. United spilaði þó leik í gær því þeir ákváðu að skipta leikmannahópnum í tvö lið og spila „æfingaleik“. Fréttir bárust svo af því síðar í gær að Michael O’Neill, stjóri Stoke, hafi verið greindur með veiruna. United staðfestir að enginn úr leikmannahópnum né þjálfarateyminu hafi átt í samtölum við O’Neill. Það eru níu dagar þangað til að Manchester United byrjar að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni en þeir mæta Tottenham á föstudaginn eftir rúma viku. Enska B-deildin fer af stað síðar í mánuðinum. Breaking: Stoke City have confirmed that manager Michael O'Neill has tested positive for COVID-19 following the latest round of testing.— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 9, 2020
Enski boltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Körfubolti Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Fótbolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Besta deild kvenna og Ronaldo Sport Fleiri fréttir Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Van Dijk fær 68 milljónir á viku Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Sjá meira