Farþegafjöldi í Strætó á höfuðborgarsvæðinu jókst um 6,8 prósent árið 2019.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó. Þar segir að innstig í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu hafi verið um 11,4 milljónir árið 2018, en á nýliðnu ári hafi þau verið um 12,2 milljónir.
Í tilkynningunni segir ennfremur að olíunotkun Strætó hafi minnkað um tæpa 252 þúsund lítra árið 2019 í samanburði við árið 2018 eða um 13,5 prósent.
„Losun á CO2 minnkaði um rúmlega 606 tonn á milli ára. Þessar tölur skýrast af innkomu 14 rafvagna inn í leiðanet Strætó en vagnarnir voru komnir í fulla notkun árið 2019,“ segir í tilkynningunni.
