Kim Ekdahl Du Rietz, leikmaður sænska landsliðsins, íhugar að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið.
Du Rietz hætti í handbolta vorið 2017, þá aðeins 27 ára og fór að ferðast um heiminn. Hann byrjaði svo aftur í handbolta ári seinna og gekk í raðir Paris Saint-Germain sumarið 2018.
Eftir tap Svía fyrir Norðmönnum í gær, 23-20, sagði Du Rietz að til greina kæmi að hætta aftur eftir tímabilið. Hann myndi því ljúka ferlinum á Ólympíuleikunum 2020, ef Svíþjóð myndi komast þangað.
„Ég gæti hætt,“ sagði Du Rietz við Sport Bladet. „Samningurinn minn við PSG rennur út eftir tímabil og svo taka Ólympíuleikarnir vonandi við.“
Du Rietz segist ekki vita hvort PSG vilji framlengja samning hans.
„Ég veit það ekki. Ég held öllum möguleikum opnum. Ég hef áður sagt að ég gæti hætt. Þess vegna held ég öllu opnu,“ sagði Du Rietz sem náði sér ekki á strik gegn Noregi og var aðeins með tvö mörk í átta skotum.
Svíar hafa valdið miklum vonbrigðum á EM og eiga ekki möguleika á að komast í undanúrslit, þótt tveimur umferðum sé ólokið í milliriðli.
Þrítugur leikmaður Svía íhugar að hætta aftur í handbolta

Tengdar fréttir

Löwen staðfestir endurkomu Kim Ekdahl du Rietz
Sænski handboltakappinn sagðist vera hættur í handbolta síðasta sumar, aðeins 27 ára gamall, þar sem hann væri kominn með leið á íþróttinni.

Fer hamingjusamur inn í óvissuna
Einn besti handboltamaður heims ætlar að hætta í íþróttinni í sumar fyrir fullt og allt, aðeins 27 ára gamall. Kim Ekdahl du Rietz ræðir við Fréttablaðið um ákvörðun sína sem er byggð á því að hann nýtur þess ekki að vera handboltamaður og hefur aldrei gert.

Fjórir lykilmenn Svía fengu sér í tána í leyfisleysi
Fjórmenningarnir drukku áfengi án þess að fá leyfi sænska þjálfarateymisins.

Einn besti handboltamaður heims hættir 27 ára til að ferðast um heiminn
Kim Ekdahl du Rietz náði að semja um starfslok við besta lið Þýskalands og hefur ákveðið að hætta að spila handbolta á besta aldri.

Norðmenn lögðu Svía
Noregur lagði Svíþjóð í EM karla í handbolta með þriggja marka mun í kvöld, lokatölur 23-20. Sigurinn þýðir að Norðmenn eru komnir með annan fótinn í undanúrslit mótsins en liðið er með sex stig í efsta sæti milliriðils II á meðan Svíþjóð er á botni riðilsins án stiga þó svo að mótið fari fram í Svíþjóð.

Hætti 27 ára en nú kominn í ríkasta félag heims
Líf og handboltaferill Svíans Kim Ekdahl du Rietz er afar sérstakur.

Fékk skilaboð frá Ólafi Stefánssyni í viðnum
Sænski handboltamaðurinn Kim Ekdahl du Rietz var í viðtali í Fréttablaðinu í dag þar sem hann fór betur yfir þá ákvörðun sína að setja handboltaskóna upp á hillu.