Skoðun

Mann­eldi fyrir austan

Gauti Jóhannesson skrifar

Mikil uppbygging hefur verið í fiskeldi á Austfjörðum undanfarin ár og er reiknað með að framleiðslan verði 17 – 18.000 tonn á þessu ári. Til einföldunar má gera ráð fyrir að 10 starfsmenn þurfi til að framleiða hver 1000 tonn enda lætur nærri að nú hafi 170 manns hafi beina atvinnu af eldi og vinnslu á svæðinu. Við þetta bætast svo fjölmörg afleidd störf s.s. ýmis iðnaðarstörf, netaverkstæði, köfun, veitingar, gisting og flutningar svo nokkur dæmi séu tekin.

Engum dylst þau miklu efnahagslegu áhrif sem fiskeldi hefur haft á sunnanverðum Austfjörðum á undanförnum árum. Þar hefur orðið viðsnúningur í atvinnulífinu og íbúaþróun samhliða uppbyggingu greinarinnar og fjölmörg afleidd störf hafa skapast eins og áður hefur komið fram. Af því tilefni má nefna að nýlega var úthlutað 5.000 fermetra lóð undir umbúðaverksmiðju á Djúpavogi auk þess sem nú er unnið að breytingu á aðalskipulagi vegna byggingar laxasláturhúss sem fyrirhugað er að rísi þar einnig. Umtalsverðar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í Djúpavogshöfn m.a. til að koma til móts við þarfir greinarinnar en einnig til að bæta hefðbundna löndunaraðstöðu.

Það er því ljóst að umtalsverðar fjárfestingar eru í farvatninu og líklegt að fiskeldi og vinnsla verði mikilvæg stoð í atvinnulífi nýs sameinaðs sveitarfélags í framtíðinni.

Eins og oft vill verða eru skiptar skoðanir um greinina. Hagsmunaaðilar hafa sig mjög í frammi og fyrir leikmann er oft erfitt að átta sig á raunverulegri stöðu mála og hvað er satt og hvað er rétt.

Eftir stendur að fyrir íbúa sveitarfélaganna sem um ræðir er mikið í húfi. Það er því mikilvægt að þeim stofnunum sem málaflokkurinn heyrir undir sé gert kleift að sinna skyldum sínum og að leyfisveitingar og umsóknarferli sé skilvirkt og gagnsætt og byggi á bestu fáanlegu upplýsingum.

Það ástand sem við búum við nú er tímabundið. Þegar þessu fordæmalausa tímabili lýkur þá er leiðin til baka fyrir nýtt sameinað sveitarfélag á Austurlandi vörðuð öflugri og fjölbreyttri sókn í atvinnumálum. Sjálfstæðisflokkurinn í nýju sameinuðu sveitarfélagi vill styðja við frekari uppbyggingu í tengslum við fiskeldi með ábyrgum hætti og samstarfi við eftirlitsaðila. Leita leiða til að stuðla að fullvinnslu og frekari verðmætasköpun í vinnslu sjávarafla og fullnýta þá möguleika sem Egilsstaðaflugvöllur og hafnir nýs sveitarfélags hafa til vöruútflutnings og útflutnings ferskvöru

Settu X við D á kosningadaginn. Með samstilltu átaki íbúa, fyrirtækja og sveitarfélagsins er framtíðin björt.

Höfundur er sveitarstjóri Djúpavogshrepps og fyrsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðar eystri, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×