Hinn geysivinsæli liður Hvað ertu að gera, maður? var að sjálfsögðu á sínum stað í Seinni bylgjunni í gær.
Henry Birgir Gunnarsson, Jóhann Gunnar Einarsson og Logi Geirsson gerðu upp síðustu umferðir í bæði Olís-deild karla og kvenna.
Hvað ertu að gera, maður? var sýnt undir lok þáttarins og þar mátti sjá meðal annars nokkur atriði úr Eyjum sem og skemmtileg tungusvipbrigði Jóhanns Gunnars.
Allt innslagið má sjá hér að ofan.
Seinni bylgjan: Reykspólun í Safamýri og tungan á Jóa

Tengdar fréttir

Seinni bylgjan: Leikmenn sem fá betri samning eftir tímabilið
Logi Geirsson tók saman lista yfir leikmenn í Olís-deild karla í handbolta sem munu fá betri samning eftir tímabilið.

Seinni bylgjan: Ég hef ekki séð verra brot í langan tíma
Seinni bylgjan skoðaði sérstaklega rautt spjald sem KA-maðurinn Daði Jónsson hlaut í leik KA á móti Stjörnunni í Ásgarði. En átti Tandri Már Konráðsson líka að fá rautt?

Seinni bylgjan: Jóhann Gunnar brast í söng þegar hann sjá mömmumyndirnar
Eyjamenn hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu og mömmu útspil stuðningsmanna félagsins í bikarleiknum á móti FH fór ekki alltof vel ofan í fólk. Strákarnir í Hvítu Riddurunum mættu til leiks með nýja taktík í leikinn á móti Haukum. Þeir héldu sig við mömmurnar en núna voru þeir komnir með sínar eigin mömmur.