Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag líkt og aðra laugardaga. Alls verða níu beinar útsendingar en við sýnum beint frá golfi, handbolta sem og fótbolta í dag.
Við tökum daginn snemma með Evrópumótaröðinni í golfi en hún hefst nú eftir tvo tíma eða klukkan 08:00. PGA mótaröðin er svo á
dagskrá seinni part dags.
Í hádeginu verður ferðinni heitið til Hull í Englandi þar sem Leeds United heimsækir Hull City í ensku B-deildinni. Leeds hefur átt góðu gengi að fagna undanfarið og unnið mikilvæga 1-0 sigra í baráttunni um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Töframaðurinn Marcus Maddison gekk hins vegar í raðir Hull í janúar og eru Tígrisdýrin til alls líkleg í leiknum.
Síðar um daginn sýnum við svo leik Fulham og Preston North End í sömu deild.
Hið fornfræga félag Leeds er sem stendur í 2. sæti ensku B-deildarinnar, x stigum á eftir West Bromwich Albion sem situr á toppnum en fimm stigum á undan Fulham sem er í 3. sæti deildarinnar. Efstu tvö liðin fara beint upp í úrvalsdeildina á meðan næstu fjögur lið fara í umspil.
Þá er ítalski boltinn á dagskrá en Ciro Immobile stefnir á að halda markaskorun sinni áfram er Lazio fær Bologna í heimsókn. Takist Lazio að sigra þá fer liðið í toppsæti Serie A, allavega í sólahring en Juventus mætir Inter Milan í stórleik helgarinnar á sunnudag. Líklega verður leikið fyrir luktum dyrum.
Eftir kvöldmat mætast svo Napoli og Torino en fyrrnefnda liðið gerði 1-1 jafntefli við Barcelona í Meistaradeild Evrópu í miðri viku.
Á Spáni er einn leikur hinn síungi Joaquín og liðsfélagar hans í Real Betis heimsækja Valencia. Síðarnefnda liðið er í harðri baráttu um Evrópudeildarsæti en Valencia er sem stendur í 8. sæti með 38 stig, tveimur stigum frá 6. sætinu sem gefur sæti í Evrópudeildinni og fimm stigum frá 4. sætinu en það gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Betis siglir lygnan sjó í 13. sæti.
Þá geta Valsarar tekið gleði sína en við sýnum annars vegar leik Vals og ÍBV í Lengjubikar karla sem og við sýnum stórleik Olís deildar kvenna þar sem Valur fær Fram í heimsókn. Nokkuð ljóst að síðari leikurinn er töluvert stærri en þar mætast tvö sterkustu lið Olís deildarinnar.
Allar beinar útsendingar Stöð 2 Sport og hliðarrása má finna á vef okkar.
Í beinni í dag
08:00 European Tour 2020 (Stöð 2 Golf)
12:25 Hull City - Leeds United (Stöð 2 Sport)
13:50 Valur - ÍBV, Lengjubikarinn (Stöð 2 Sport 2)
13:50 Lazio - Bologna (Stöð 2 Sport 4)
14:50 Valencia - Real Betis (Stöð 2 Sport 3)
14:55 Fulham - Preston North End (Stöð 2 Sport)
16:50 Valur - Fram, Olís deild kvenna (Stöð 2 Sport 2)
18:30 PGA Tour 2020 (Stöð 2 Golf)
19:35 Napoli - Torino (Stöð 2 Sport)
Í beinni í dag: Toppslagur í Olís deild kvenna | Kemur Immobile Lazio í toppsætið?

Tengdar fréttir

Steinunn: Við erum særðar og reiðar
Einn af stórleikjum vetrarins í Olís-deild kvenna fer fram á morgun þegar langbestu lið landsins - Valur og Fram - mætast. Fram er með þriggja stiga forskot á Valskonur sem verða að vinna leikinn. Annars er deildarmeistaratitillinn Fram-kvenna.