Það var mikill rigning á suðvesturhorni landsins í gær og það hafði mikil áhrif á einn fótboltaleik sem endaði með því að fara á mikið flakk.
Stelpurnar í sameiginlegu liði Fjarðabyggðar, Leiknis og Hattar voru komnar til Hveragerðis í gær til að spila á móti Hamar í 2. deild kvenna. Að baki var langt ferðalag að austan og ekki vinsælt ef þyrfti að fresta leiknum.
Rigning sá hins vegar til þess að vallaraðstæður voru langt frá því að vera ákjósanlegar. Fljótlega kom í ljós að það var ekki hægt að spila á vellinum.
Leikurinn hófst klukkan 15.00 en dómari þurfti að hætta leik á átjándu mínútu þar sem Grýluvöllur í Hveragerði var algjörlega vatnsósa.

Var þá ákveðið að flytja leikinn inn í fótboltahöll. Sú fótboltahöll var Kórinn í Kópavogi sem var í 41 kílómetra fjarlægð frá Grýluvellinum í Hveragerði.
Það mátti fylgjast með gangi mála á samfélagsmiðlum félaganna en bæði liðin voru lausnamiðuð þegar kom að því að leita leiða til að hægt væri að klára þennan leik. Hér til vinstri má meðal annars sjá stelpur úr liði Fjarðabyggðar, Leiknis og Hattar fíflast aðeins í pollunum á vellinum.
Allir leikmenn, starfsmenn og dómarar leiksins drifu sig upp í bíl og keyrðu alla þessa leik og leikurinn var flautaður aftur á skömmu fyrir sex. Þegar honum lauk loksins voru liðnir fimm klukkutímar síðan dómarinn flautaði hann á.
Lið Fjarðabyggðar, Leiknis og Hattar var komið í 1-0 þegar gera þurftu hlé á leiknum og vann hann að lokum 4-0. Bílferðin fór greinilega betur í stelpurnar að austan því þær komust í 3-0 fljótlega eftir að leikurinn var flautaður aftur á í Kórnum.
Fjarðab/Höttur/Leiknir er í harðri baráttu um sæti í Lengjudeildinni og liðið vann þarna mikilvægan sigur.
Freyja Karín Þorvarðardóttir skoraði mark liðsins á vellinum í Hveragerði strax á fimmtu mínútu en mörkin í Kórnum skoruðu þær Hafdís Ágústsdóttir, Halla Marinósdóttir og Halldóra Birta Sigfúsdóttir.