Sara Björk skoraði er Lyon vann sjötta leikinn í röð Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. október 2020 21:10 Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar fagna sigri í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð. VÍSIR/GETTY
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir var á varamannabekk Lyon er liðið fékk Guingamp í heimsókn í frönsku úrvalsdeildinni. Það kom ekki að sök, Sara Björk kom inn af bekknum og skoraði í 4-0 sigri liðsins. Lyon hefur farið frábærlega af stað eins og við var að búast enda ríkjandi meistarar bæði í Frakklandi sem og Evrópu. Liðið var þó nokkuð lengi af stað í leik kvöldsins og voru aðeins einu marki yfir í hálfleik. Markið skoraði Amandine Henry á 37. mínútu. Staðan var enn 1-0 er Sara Björk kom inn af bekknum á 63. mínútu og aðeins átta mínútum síðar var hún orðin 2-0 þökk sé marki Amel Majri. Aðeins tíu mínútum eftir að Sara Björk kom inn af bekknum var hún búin að skora þriðja mark liðsins. Amel Majri bætti svo við fjórða markinu áður en leiknum lauk. 73' GGGGGOOOOAAAAALLL ! @sarabjork18 vient tripler la mise avec une frappe limpide qui vient tromper Durand !3-0 #OLEAG pic.twitter.com/4PxnEEPDwj— OL Féminin (@OLfeminin) October 16, 2020 Öruggur 4-0 sigur því staðreynd og Lyon enn með fullt hús stiga þegar sex umferðum er lokið. Paris Saint-Germain er fimm stigum á eftir meisturunum og á leik til góða. Þær eru einnig taplausar og gæti verið að Lyon þurfi að hafa fyrir því að landa sigri í frönsku deildinni að þessu sinni.
Fótbolti Franski boltinn Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Fleiri fréttir Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Sjá meira