Þing Alþýðusambands Íslands fer fram í dag, en það er það 44. í röðinni. Vegna heimsfaraldursins er þingið rafrænt að þessu sinni, en það hefst klukkan 10. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er Réttlát umskipti.
Miðstjórn sambandsins ákvað í síðasta mánuði að kjarnaatriðin samkvæmt lögum ASÍ verði afgreidd á þinginu en þinginu svo frestað fram á vor þegar farið verður í málefnavinnu.
Hægt verður að fylgjast með upphafi þingsins í spilaranum að neðan en rétt fyrir klukkan 11 verður þinginu lokað öðrum en skráðum þingfulltrúum sem eru um þrjú hundruð talsins.
Dagskrá þingsins
Kl. 10:00 Þingsetning
Ávarp forseta ASÍ
Ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra
Ávarp ASÍ-UNG
Opnunarerindi Sharan Burrow, framkvæmdastjóri ITUC: Réttlát umskipti
Kl. 11:20 Stutt hlé
Kl. 11:30
Álit kjörbréfanefndar
Afgreiðsla kjörbréfa Kosning þingforseta og embættismanna þingsins
Þingsköp ASÍ – afgreiðsla tímabundinna frávika
Tillaga um frestun tiltekinna dagskrárliða til framhaldsþings:
- Málefni þingsins - kynningu, umræðum og afgreiðslu frestað. o Öflugt atvinnulíf á sjálfbærum grunni - góð græn störf
o Réttindi og félagsleg vernd o Menntun til framtíðar
o Réttlátt skattkerfi - Lagabreytingar – kynningu, umræðum og afgreiðslu frestað.
Kl. 11:45
Skýrsla forseta ASÍ
Ársreikningar ASÍ og stofnana
Kosningar og almennar umræður hefjast
Kosning forseta ASÍ
Kosning 1. og 2. varaforseta
Kosning í miðstjórn: aðal- og varamenn
Kosning aðalskoðunarmanna og varamanna
Kosning löggilts endurskoðanda Kosning kjörnefndar
Kl. 12:15 Stutt hlé
Kl. 12:30 Almennar umræður halda áfram
Kl. 14:00 Forseti ASÍ frestar 44. þingi sambandsins
Nefndarstörfum og málefnavinnu, ásamt umræðum og afgreiðslu, verður frestað fram á vor 2021.