Skoðun

Ríkis­stjórnin saman í kosninga­bar­áttu?

Björn Leví Gunnarsson skrifar

Kosið verður þann 25. september á næsta ári. Ástæðan fyrir því er að ríkisstjórninni þykir svo vænt um hvert annað, þrátt fyrir opinberar vantraustsyfirlýsingar, að hana langar til þess að klára kjörtímabilið. Kannski er réttara að segja að ríkisstjórninni finnst bara svona vænt um völdin frekar en hvort annað. Sameinuð í valdi og íhaldi sem meira að segja stjórnarþingmaður stimplar sem alræði.

Ríkisstjórnin treysti sér ekki til þess að laga skekkjuna í þeirri hefð okkar að kjósa á vorin heldur ákveður að festa í sessi haustkosningar þrátt fyrir alla gallana. Helsta vandamálið er vinna við fjárlög, en stjórnarskráin gerir ráð fyrir að fjárlagafrumvarp sé fyrsta mál haustþings sem getur í síðasta lagi komið saman þann 1. október. Tæpri viku eftir næstu kosningar.

Lög gera hins vegar ráð fyrir því að haustþing komi saman 14. september nema ríkisstjórnin ákveði að breyta því eins og var gert í ár. Þannig ætti að leggja fram fjárlög fyrir árið 2022 þann 14. september en einhvern veginn grunar mig að það muni ekki gerast. Ég tel engar líkur á því að við fáum að sjá fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjórnar fyrir kosningarnar næsta haust. Samt mun það frumvarp birtast landsmönnum fimm dögum eftir kosningar.

Sameiginleg sýn sama hvað

Mun núverandi ríkisstjórn fara saman í kosningabaráttu með þær sameiginlegu áherslur sem hún leggur fram í fjárlagafrumvarpinu sem allir fá að sjá eftir kosningarnar? Einhvern veginn finnst mér það mjög ólíklegt miðað við þann kosningaskjálfta sem virðist hlaupinn í suma þingmenn stjórnarinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn ýmist keppist við að veifa frelsismálum sem aðrir lögðu fram fyrir löngu, eða berjast gegn frelsismálum sem aðrir lögðu fram fyrir stuttu. VG skammar fyrri ríkisstjórnir fyrir dugleysi í loftslagsmálum, sem hafa samt verið myndaðar að miklu leyti úr sömu flokkum og þessi ríkisstjórn, og Framsókn læðist með veggjum eins og venjulega. Samt verður þeirra fjárlagafrumvarp fyrsta mál næsta kjörtímabils.

Þetta er stöðugleikinn sem ríkisstjórnin sagði að allir væru að kalla eftir. Leiðin til þess að auka traust til stjórnmála. Eða eins og forsætisráðherra orðaði það: „Ég átti svo sem aldrei von að samstaða myndi nást.“ 

Höfundur er þingmaður Pírata.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×