„Aðalvandamálið er að það er svo lítið pláss,“ sagði hin 12 ára Arndís Klara um svefnherbergið sitt. Svo fékk hún Soffíu Dögg Garðarsdóttir í heimsókn og þá breyttist allt. Á óskalistanum var nýtt rúm og ljósari húsgögn. Þemað sem Arndís Klara sá fyrir sér var hvítt, viður og plöntur.
Í öðrum þætti af Skreytum hús fékk Soffía það skemmtilega verkefni að breyta barnaherbergi í unglingaherbergi.
„Ég sé að þú ert dama sem vill hafa kósý hjá sér, nóg af púðum, nóg af böngsum“ sagði Soffía þegar hún gekk inn í herbergið. Með sniðugum breytingum tókst henni að koma inn fleiri húsgögnum í rýmið án þess að það virkaði minna.
Hönnunarþættirnir Skreytum hús birtast hér á Vísi og á Stöð 2 Maraþon alla þriðjudaga. Annan þáttinn má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.
„Inni í herberginu hennar Arndísar var fataskápurinn við vegginn á móti rauða veggnum og síðan voru öll húsgögnin nánast röðuð við hliðina á, þetta myndaði næstum því vatnshalla í herberginu,“
sagði Soffía um herbergið fyrir breytingu. Það var því stærsta verkefnið að endurraða svo hún ákvað að setja rúmið undir gluggann. Þannig varð pláss fyrir himnasæng, hægindastól og fleira fallegt. Eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir ofan var Arndís í skýjunum með breytinguna.

Ævintýraheimur í heberginu
Í búðarferðinni völdu þær Soffía og Arndís gráan höfðagafll úr velúr við rúmið. Soffía segir að það sé ekkert mál að þrífa þessa gafla.
„Það er langbest að vera með rakan þvottapoka, setja höndina inn í og strjúka yfir. Allt ryk fer af.“

Arndís hafði óskað eftir himnasæng við rúmið og ákvað Soffía að leysa það með því að setja gardínubraut í loftið. Þannig er nú hægt að loka rúmið af með gegnsæjum gardínum.
„Ótrúlega einföld lausn sem er hægt að nýta í næstum því hvaða herbergi sem er. Svo ég tala nú ekki um hjá svona krökkum sem að elska að láta skapa svolítinn ævintýraheim inni hjá sér. “
Yndisleg stund
„Ó mæ god þetta er svo flott,“ var það fyrsta sem Arndís sagði þegar hún kom heim. „Viðbrögðin hennar Arndísar voru dásamleg,“ segir Soffía um verkefnið.
„Hún grét, ég grét, mamman grét. Við grétum allar og þetta var alveg yndisleg stund.“

Það verður ekki annað sagt en að Soffíu hafi tekist að ná markmiðinu.
„Mér líður eins og þetta sé ekki herbergið mitt,“ sagði Arndís og brosti út að eyrum. „Ég trúi þessu ekki.“

Í ítarlegri færslu Soffíu á síðunni Skreytum hús má finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu. Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni en fyrsta þáttinn af Skreytum hús má finna HÉR.