„Við erum búin að vera að græja og gera ýmislegt. Við fluttum hingað inn fyrir tveimur árum , segir Ásdís Hanna Pálsdóttir en hún býr ásamt eiginmanni og fjórum börnum í Hafnarfirði.
„Hjónaherbergið hefur alltaf setið á hakanum,“ viðurkenndi Ásdís þegar Soffía Dögg Garðarsdóttir heimsótti hana í þriðja þætti af Skreytum hús. Þar var verkefnið að fjarlægja rimlarúm yngsta barnsins út úr hjónaherberginu og uppfæra það.
„Við þurftum bara hreinlega að ýta börnunum út og gera herbergið rómó og kósý,“ segir Soffía.
„Ásdísi langaði sérstaklega mikið að hafa þetta svolítið dökkan og djúsí fíling þannig að við völdum dökkgráan fallegan lit á veggina. Svo ákváðum við hreinlega að mála skáphurðirnar líka til að láta þær í raun og veru hverfa.“
Hægt er að horfa á þriðja þátt af Skreytum hús í spilaranum hér fyrir neðan og verður hann einnig aðgengilegur á Stöð 2 Maraþon.
„Það þarf oft bara eitthvað eitt sem er að heilla mann sem ýtir manni svolítið áfram,“ segir Soffía um fyrsta skrefið. Þetta geta verið gardínur, púði eða annað sem kemur hugmyndavinnunni af stað áður en farið er að stað í breytingar.

Mikilvæg mubla
Svefnherbergið var nógu stórt til að hægt væri að kaupa stærra hjónarúm og varð dökkgrár flauels rúmgafl fyrir valinu.
„Persónulega finnst mér hreinlega að það ætti að vera í lögum að hafa rúmgafla á öllum rúmum, sérstaklega í hjónaherbergjum. Þetta eru ekki mörg húsgögn sem að fara inn í þessi rými og þetta er svo mikilvæg mubla,“
segir Soffía. Hún ráðlagði Ásdísi að taka ekki eins náttborð báðu megin svo þær völdu tvö mismunandi náttborð.

Ramminn á rúminu var einnig klæddur með flauelsefni og það sama má segja um loftljósið og borðlampana sem Ásdís Valdi.
„Borðlamparnir geta hreinlega verið eins og skart inn í herbergið.“

Gardínurnar gefa mýkt
Þar sem fæturnir á rúminu voru krómaðir ákvað Soffía að láta sprauta þær svartar, þar sem litavalið fyrir herbergið var svart, grátt, gyllt og bleikt
„Sjálf er ég ekki hrifin af því að setja mikið af fjölskyldumyndum því við viljum ekkert hafa ömmu og afa með okkur inni í hjónaherberginu.“

Soffía segir mikilvægt að setja fallegar gardínur í svefnherbergið til að fá enn meiri mýkt. Flauelsbekkur, skrautmunir, spegil og púðar settu svo mikinn svip á herbergið.
„Það er rosalega gott að hugsa þetta líka í þristum. Ef við erum með þrennt af einhverju þá erum við rosa góð.“

Í lok þáttar sýndi hún líka sniðuga leið til að fá lengri gardínustangir með því að festa tvær stangir saman. Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús má finna frekari upplýsingar um breytingarnar, fullt af flottum myndum af hverju smáatriði og lista yfir þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á þriðjudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2 Maraþon.