Fyrirlestri Ólafs Egils Egilssonar leikstjóra er streymt beint hér á Vísi klukkan 12 í dag. Þetta er annað beina streymið frá Borgarleikhúsinu á meðan á samkomubanninu stendur en leikhúsið ætlar að bjóða Íslendingum upp á þétta dagskrá næstu vikur.
Fleiri viðburðir eru á döfinni. Í hádeginu á föstudaginn verða tónleikar með Bubba Morthens í beinni hér á Vísi og verður það vikulegur viðburður þar til samkomubanninu lýkur. Í gærkvöldi var sýningunni Skattsvik Development Group streymt við gríðarlega góðar undirtektir.
Uppfært. Fyrirlestrinum er lokið en hægt er að horfa á hann í spilaranum hér fyrir neðan.
Um fyrirlesturinn
Ólafur Egill Egilsson leikstjóri fjallar um sýningu sína, Bubbasöngleikinn Níu líf, ásamt því að fjalla um stjörnusýninguna Elly sem hann átti stóran hlut í.
Elly heillaði landsmenn með söng sínum í áratugi. Hið sama má segja um Bubba. Þau eru bæði stjörnur sem samofnar eru þjóðarsálinni.
Hér fyrir neðan má sjá leikkonuna Katrínu Halldóru flytja lagið Heyr mína bæn úr sýningunni Elly.
Eitt af helstu einkennum söngleiksins Níu líf er að fjöldi leikara fer með hlutverk Bubba. Hér má sjá nokkra þeirra reyna að útskýra hvað felst í því.