Sebastian Coe, forseti alþjóðafrálsíþróttasambandsins, segir að ákvörðun um Ólympíuleikana sem fara eigi fram í Japan í sumar verði tekin bráðlega.
Íþróttsambönd víðsvegar um heim hafa kallað eftir því að leikunum verði frestað þar sem íþróttafólk geti ekki undirbúið sig almennilega vegna kórónuveirunnar.
Sky Sports greindi frá fyrr í dag.
„Það er augljóst að við þurfum að taka ákvörðun varðandi Ólympíuleikana á næstu dögum eða viku,“ segir Coe í viðtali við Sky Sports.
„Keppnin verður að vera sanngjörn og hún er það ekki eins og staðan er í dag. Við getum ekki haldið leikana ef öryggi keppanda er ekki tryggt,“ sagði hann einnig.
Leikarnir eiga að hefjast 24. júlí en frjálsíþróttasambönd Bandaríkjanna og Bretlands, ásamt öðrum, hafa óskað eftir því að þeim verði frestað. Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er ekki sömu skoðunar og segir það einfaldlega ekki koma til greina að fresta leikunum um eitt eða tvö ár eins og óskað er eftir.
Alþjóðafrálsíþróttasambandið kemur saman í næstu viku til að ræða málin og reikna má með niðurstöðu í kjölfar þess fundar.