Hún býður sig fram gegn sitjandi formanni, Þórunni Sveinbjarnardóttur, sem hefur einnig tilkynnt um framboð sitt.
Maríanna greindi frá framboði sínu í færslu á Facebook í gær þar sem hún segist hafa fulla trú á því að hún nái að vinna:
„Þetta verður án efa góður kosningaslagur sem ég hef fulla trú á að ég nái að vinna með stuðningi þeirra sem til mín þekkja. Ég hlakka til að takast á við þær krefjandi vikur sem eru framundan!“
Í dag greindi ég formönnum aðildarfélaga BHM frá þeirri ákvörðun minni að ég gæfi kost á mér sem næsti formaður BHM. Ég...
Posted by Maríanna Hugrún Helgadóttir on Wednesday, January 13, 2021
Formaður BHM er kjörinn á aðalfundi. Aukaaðalfundur fór fram í lok nóvember og samkvæmt lögum félagsins sem samþykkt voru þá skal aðalfund halda fyrir lok maímánaðar ár hvert. Formannaráð undirbýr aðalfund og ákveður dagsetningu hans á fundi í síðasta lagi í febrúar.
Svo virðist sem dagsetning aðalfundar í ár hafi ekki verið ákveðin, að minnsta kosti er ekki að finna neinar nýlegar upplýsingar um málið á vef BHM.