FH vann stórsigur á Gróttu, 31-22, þegar liðin áttust við í Kaplakrika í 5. umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn. Svo virðist sem FH-ingar hafi notað tíst Arnars Daða frá því í síðasta mánuði til að brýna sig fyrir leikinn.
Ákveðinn leikþáttur hjá fimleikafélaginu. Falleinkunn frá hinum svokallaða. Fá leyfi til að æfa handbolta. Æfa handbolta í þessari og síðustu viku. Draga síðan liðið úr keppni. Mér er skapi næst að stofna mína eigin Evrópukeppni. Búa síðan til betri leikþátt. Allir léttir. Einar.
— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) December 4, 2020
Í tístinu, sem birtist 4. desember, vildi Arnar Daði meina að FH-ingar hefðu fengið leyfi til að æfa handbolta í miðju æfingabanni vegna Evrópukeppni en síðan hætt við þátttöku í henni.
Henry Birgir Gunnarsson sagði í Seinni bylgjunni í gær að tíst Arnars Daða hefði farið illa í FH-inga og það hafi verið rifjað upp í aðdraganda leiksins gegn Gróttumönnum á sunnudaginn.
„Það eru ákveðnar líkur á því. Stundum tapa menn sér aðeins á lyklaborðinu,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson er Henry Birgir spurði hann hvort Arnar Daði hafi skotið sig í fótinn með tístinu.
„Þarna er hann bara að saka FH-ingana hálfgert um það að vera að svindla og vera óheiðarlegir. Auðvitað fer það í taugarnar á mönnum. Ef ég hefði verið Steini [Sigursteinn Arndal, þjálfari FH] hefði ég hiklaust notað þetta líka,“ sagði Ásgeir Örn.
Jóhann Gunnar Einarsson sagðist líka hafa heyrt af óánægju FH-inga og að þeir hafi farið fram á afsökunarbeiðni frá Gróttumönnum vegna tístsins.
„Þótt Arnar Daði setji þetta líklegast upp á léttu nótunum eru þetta alveg alvarlegar ásakanir. Að þeir séu að svindla á reglunum til að fá að taka nokkrar æfingar,“ sagði Jóhann Gunnar.
„Síðan var það skrifað í skýin að fyrsti leikurinn hafi verið gegn Gróttu og ég held að FH-ingar hafi svarað ágætlega fyrir þetta. En Arnar Daði er skemmtilegur karakter og ég ætla ekki að hvetja hann til að passa sig því ég hef hrikalega gaman að þessu.“

Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.