Skoðun

31 kona

Anna Kolbrún Árnadóttir skrifar

Í dag 4. febrúar er alþjóðadagur krabbameina, það er því mikilvægt að minna á og halda því til haga að Alþingi samþykkti 30. júní á síðasta ári ráðstafanir til að lágmarka kostnað vegna krabbameinsmeðferðar og meðferðar við öðrum langvinnum og lífshættulegum sjúkdómum. Ráðherra var falið að skila skýrslu þar að lútandi eigi síðar en 1. mars næst komandi. Það er nauðsynlegt að ráðherra skili skýrslunni á réttum tíma. Að greinast með krabbamein hefur áhrif á fjölmarga og við sjáum dæmi um það í átaki Krafts, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk með krabbamein þessa dagana. Áhrif þeirra sem greinast með krabbamein eru ekki hvað síst fjárhagsleg og setur framtíðardrauma þeirra sem greinast í uppnám. Það á ekki að vera þannig að fjárhagsáhyggjur vegna sjálfrar meðferðarinnar þurfi að bætast við aðrar áhyggjur sem óneitanlega verða til við það að greinast með krabbamein.

Undanfarið hefur ríkt töluverð óvissa um málefni þeirra sem vilja taka ábyrgð á eigin heilsu og ég skrifaði um það hér og enn er ekki alveg allt komið á hreint, enginn tekur ábyrgð, hver bendir á annan og það þarf ekki annað en að vísa í fréttir um sýni í pappakössum sem lágu undir skemmdum. Þau sýni sem enn eru í lagi voru loksins send til Danmerkur til greiningar, en allt of mörg þeirra voru ónýt og því þurfti að kalla um 200 konur til skoðunar á ný. Það er í meira lagi furðulegt að þau sýni sem hér eftir verða tekin eigi að senda til greiningar utan Íslands þegar bæði þekkingin og tækni eru sannarlega til staðar hér á landi. Hvernig staðið hefur að flutningi skimana fyrir brjósta- og leghálskrabbameinum til heilsugæslu og sjúkrahúsa hefur vægast sagt verið til skammar. Er það virkilega þannig að verið sé að útiloka aðkomu sjálfstætt starfandi sérfræðinga?

Samhliða öllu þessu róti og óreiðu var ætlunin að hækka aldursviðmið kvenna í fyrstu brjóstaskimun úr 40 árum í 50 ár. Ákvörðuninni var frestað en hún vofir enn yfir meðan ráðherra kveður ekki skýrt uppúr með að hætt sé við hækkun aldursviðmiðanna. Rökin eru að það sé í lagi þar sem engin gögn styðji að rétt sé að miða við 40 ár. Ég væri til í að sjá þau gögn, eru þau til, er til greining á því hversu margar konur á aldursbilinu 40 – 49 ára greindust með krabbamein vegna þess að þær fóru í skimun einkennalausar, að eigin frumkvæði, eða hversu margar þeirra fundu fyrir einkennum og fóru þá í brjóstaskoðun. Við skulum öll muna að á síðastliðnum árum hefur að meðaltali 31 kona greinst með krabbamein á milli 40 – 49 ára á ári hverju og það hlýtur að skipta máli. Konur vilja taka ábyrgð á eigin heilsu, við eigum að auka aðgengi í stað þess að standa í vegi fyrir því.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×