Í dag var fjórði dagur réttarhalda í öldungadeild Bandaríkjaþings vegna ákærunnar og fluttu verjendur Trumps mál sitt í dag. Verjendur hans sögðu ákæruna vera af pólitískum toga og líktu henni við nornaveiðar. Þá sögðu þeir ákæruna síðasta útspil Demókrata í áralangri tilraun þeirra til að bola Trump úr forsetastóli.
Verjendurnir reyndu einnig að gera lítið úr orðum forsetans og einblíndu einna helst á það þegar forsetinn sagði stuðningsmönnum sínum „að berjast“ í ræðu sem hann hélt áður en árásin var gerð á þinghúsið þann 6. janúar síðastliðinn. Þá spiluðu þeir fjölmargar klippur þar sem Demókratar, sumir þeirra öldungadeildarþingmenn sem nú sinna embætti dómenda í málinu, notuðu sömu orð og Trump gerði til þess að hvetja stuðningsmenn sína til þess að fara gegn Trump.
„Þið gerðuð ekkert rangt með því að nota þessi orð,“ sagði David Schoen, lögmaður Trumps í dag. „En viljið þið vinsamlegast hætta þessari hræsni.“
Fréttastofa AP bendir á að lögmennirnir hafi ekki einu sinni minnst á að Trump hafi hvatt til þess að stuðningsmenn hans berðust gegn niðurstöðum lýðræðislegra kosninga eftir að hvert eitt og einasta ríki Bandaríkjanna hafði staðfest niðurstöðurnar, eftir að kjörmenn höfðu staðfest kosninganiðurstöðurnar og eftir að nærri hver ein og einasta málsókn sem Trump hafði höfðað vegna niðurstöðu kosninganna hafði verið vísað frá dómi.
Málflutningi Demókrata og verjenda Trumps er nú lokið og er niðurstöðu beðið í málinu. Talið er að niðurstaða geti fengist á morgun hið fyrsta. Verjendur Trumps nýttu aðeins hluta þess málflutningstíma sem þeim var heimilaður, eða þrjá klukkutíma af þeim sextán sem þeim var úthlutað.
Miklar líkur eru taldar að Trump verði sýknaður, en til þess að hann verði sakfelldur þurfa allir fimmtíu öldungadeildaþingmenn Demókrata og sautján þingmenn Repúblikana að greiða atkvæði með því að sakfella hann.
Demókratar hafa bent á að verjendur Trumps hafi ekki svarað helstu spurningum sem lagðar voru fram í málinu, það er hvort að orð Trumps hafi valdið árásinni á þinghúsið. Þess í stað hafi þeir einblínt á það að fá málflutningsmenn Demókrata til þess að fara í vörn í stað sóknar.