Tvær vikur eru nú liðnar frá því herinn tók völdin í Mjanmar og setti kjörna leiðtoga í stofufangelsi. Síðan þá hefur smám saman færst meiri kraftur í mótmæli gegn herforingjastjórninni.
Viðbúnaður hers og lögreglu er töluverður og komið hefur til átaka við mótmælendur. Hundruð hafa verið handtekin, meðal annars hópur nema frá þrettán og upp í sextán ára, sem mótmælendur kröfðust að yrði leystur úr haldi í dag. Mótmælin hafa almennt farið fram með friðsamlegum hætti.
Til stóð að Suu Kyi yrði leidd fyrir dóm í dag, en hún er sökuð um að hafa smyglað ólöglegum fjarskiptatækjum til landsins. Lögmaður hennar sagði því þó hafa verið frestað, þótt ástæðan liggi ekki fyrir.