Sermitsiaq.AG segir frá því að 27 af 31 þingmanni hafi greitt atkvæði með því að boða til kosninga, en mikil óvissa og spenna hefur verið í grænlenskum stjórnmálum síðustu mánuði. Flokkurinn Demokraatit sagði skilið við samsteypustjórn flokksins, Siumut og Nunatta Qitornai fyrr í mánuðinum sem varð til þess að eftir stóð veik minnihlutastjórn sem einungis naut stuðnings ellefu þingmanna.
Miklar umræður fóru fram í grænlenska þinginu í gær um tillögu stjórnarandstöðuflokkanna um að boða til nýrra kosninga. Áður en til atkvæðagreiðslunnar kom fór Kim Kielsen forsætisráðherra svo upp í pontu og þakkaði fyrir sig, en hann hefur gegnt embættinu frá árinu 2014.
Mikil átök hafa verið innan Siumut, flokks Kielsens, síðustu vikur og mánuði, en Erik Jensen bolaði honum úr formannsembætti í nóvember síðastliðinn. Jensen mun því leiða kosningabaráttu flokksins.
Skoðanakannanir benda til að nokkur breyting gæti orðið á samsetningu þingsins, en þær benda til að Inuit Ataqatigiit, sem nú er með átta þingmenn, fái um þrettán þingsæti.
Alls eru nú sjö flokkar á grænlenska þinginu, en kannanirnar benda sömuleiðis til að einhverjir minnstu flokkanna muni detta út af þingi í þeim kosningum sem framundan eru.