Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum sem biðla til vegfarenda að taka tillit til aðstæðna á svæðinu. Gervitunglamyndir og GPS-mælingar sýna að kvika heldur áfram að flæða inn í kvikuganginn milli Keilis og Fagradalsfjalls og er mesta skjálftavirknin á Reykjanesskaga áfram bundin við Fagradalsfjall.
RÚV greinir frá því að íbúar á Völlunum í Hafnarfirði hafi fengið SMS um að þeir væru á lokuðu svæði og um leið vísað á upplýsingasíðu um jarðhræringar á Reykjanesskaga.
Líklegasta gossvæðið færst nær Fagradalsfjalli
Fram kom á fundi vísindaráðs almannavarna í gær að nýjustu gögn bendi til að líklegasta gossvæðið á Reykjanesskaga hafi færst eftir kvikuganginum að norðausturhluta Fagradalsfjalls.
Alls hafa tíu jarðskjálftar um og yfir þrír að stærð mælst á Reykjanesskaga síðustu tvo sólarhringa, flestir þeirra í námunda við Fagradalsfjall. Stórum skjálftum hefur fækkað nokkuð og eru þeir minni en áður. Virkni er samt sem áður mikil og skjálftarnir mjög margir sé miðað við hvernig jarðskjálftavirkni er venjulega á Reykjanesskaga.
Þorbjörg Ágústsdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Íslensku orkurannsóknum, sagði í samtali við fréttastofu í gær að gögn bendi til að kvikugangurinn væri um átta kílómetra langur, fjórir kílómetrar á hæð og líklega ekki nema metri á breidd. Þá er talið er að skjálftavirknin sé undir kvikuganginum.