Þetta kemur fram í yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins (SE) en tilefni hennar er umfjöllun fjölmiðla um kostnað Festi vegna Lúðvíks sem hefur gegnt hlutverkinu frá árinu 2018. Skipun kunnáttumanns var meðal skilyrða fyrir því að samruni N1 og Festi, sem rekur verslanir Krónunnar og Elko, næði fram að ganga.
Starfar Lúðvík, héraðsdómslögmaður og fyrrverandi þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sem fulltrúi SE innan hins sameinaða félags.
Greitt 55,6 milljónir króna vegna Lúðvíks
Fram kom í skýrslu stjórnar Festi sem stjórnarformaðurinn Þórður Már Jóhannessonar flutti á aðalfundi félagsins á mánudag að kostnaður vegna kunnáttumannsins væri kominn upp í 55,6 milljónir króna.
Kjarninn greindi frá málinu en til viðbótar hafa reikningar lögfræðinga Festi vegna sáttarinnar við SE numið 24,4 milljónum króna og samanlagður kostnaður félagsins frá upphafi sáttar því um 80 milljónir króna.

Að mati stjórnar er þessi kostnaður „verulega hærri en væntingar voru til um“ og bent á að kostnaður Haga af óháðum kunnáttumanni sem skipaður var vegna samruna félagsins við Olís sé brot af kostnaði Festi.
Þá segir stjórn Festi að samstarfið við Lúðvík hafi ekki gengið eins vel og félagið hefði kosið og að því hafi „á tíðum þótt skorta á að leiðbeiningar kunnáttumanns væri með þeim hætti sem vænta mætti.“
Festi hyggst óska eftir breytingum á aðkomu Lúðvíks að sátt félagsins við SE en skipunartími hans á ekki að renna út fyrr en í október 2023.
Geti leitt til töluverðs hagræðis fyrir fyrirtæki
Í yfirlýsingu SE segir að hlutverk kunnáttumanns sé að fylgja því eftir að viðkomandi fyrirtæki grípi tímanlega til þeirra ráðstafana sem það hafi lofað að grípa til og jafnframt að taka til skoðunar mögulegar kvartanir og önnur atriði sem kalli á sérstaka skoðun.
„Er hann oft í stöðu til þess að leysa úr álitaefnum sem upp koma, sem og kvörtunum keppinauta og viðskiptavina, með skjótvirkari hætti en samkeppnisyfirvöldum er unnt. Þannig getur skipan kunnáttumanns leitt til töluverðs hagræðis bæði fyrir viðkomandi fyrirtæki og samkeppnisyfirvöld,“ segir á vef stofnunarinnar.

Skipan kunnáttumanns í málum af þessu tagi er sögð byggjast á alþjóðlegum fordæmum í samkeppnisrétti og meðal annars ætlað að stuðla að því að samrunar fyrirtækja valdi almenningi ekki tjóni.
„Í þessu máli hefur kunnáttumaður gegnt mikilvægu hlutverki í að varpa ljósi á framkvæmd Festi á þeim skilyrðum sem félagið skuldbatt sig til að fylgja. Í samræmi við starfsskyldur sínar hefur hann gert Samkeppniseftirlitinu grein fyrir mögulegum brotum á sáttinni. Eru þau nú til rannsóknar.“
Lúðvík sá eini sem uppfyllti skilyrði
SE segir að Festi hafi samkvæmt sátt sinni við stofnunina skuldbundið sig til að tryggja fullnægjandi eftirlit með framkvæmd hennar og velja til þess óháðan kunnáttumann. Festi hafi tilnefnt þrjá einstaklinga í því skyni en að Lúðvík hafi verið sá eini sem uppfyllti skilyrði um óhæði gagnvart Festi og eftirlitsverkefnum sáttarinnar.
„Þekkt er í samkeppnismálum að kostnaður af störfum kunnáttumanna getur verið mismunandi. Ræðst það m.a. af því hvort og hvernig viðkomandi fyrirtæki fara að þeim skuldbindingum sem þau hafa lofað að hlíta.
Samkeppniseftirlitið hefur gefið fyrirtækjum leiðbeiningar um kostnaðaraðhald með kunnáttumönnum eða eftirlitsnefndum sem starfa samkvæmt sáttum við fyrirtæki. Þar kemur m.a. fram að fyrirtækjum sé rétt að sýna kunnáttumönnum kostnaðaraðhald með svipuðum hætti og með annarri aðkeyptri þjónustu, án þess að sjálfstæði starfsins sé stefnt í hættu.“