„Þau eru með alveg fullt af dóti hér inni,“ sagði Anna Sigríður Einarsdóttir um barnaherbergið.
„En þau eru með dót inni í svefnherbergi hjá okkur og niðri í stofu.“

Barnaherbergið átti að verða að sameiginlegu rými fyrir systkini, fjögurra ára stúlku og eins árs dreng. Þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Eins og alltaf mælum við með því að þú horfir á þáttinn áður en þú lest áfram.
Farin að þrá breytingu
„Okkur vantaði körfur, púða og allt þetta smálega,“ sagði Soffía Dögg um verslunarferðina þeirra. Þær fundu meðal annars rúmteppi, himnasængur og margt fleira. Anna Sigríður valdi líka fallegan bekk í barnaherbergið
„Dóttir mín var að klippa og líma á leikskólanum og ég velti fyrir mér hvort að hún sé farin að þrá einhvers konar breytingu í svefnherberginu sínu,“ segir Anna Sigríður í þættinum og sýndi um leið úrklippur af svefnherbergjum úr IKEA vörubæklingi.

Stúlkan hafði sterkar skoðanir og valdi sér litinn Dásamlegur frá Slippfélaginu.
„Hann er svo fallega blár og það er nefnilega svo fallegt að nota hvíta litinn með, nota bast með og smá viðartóna, svona til að ná hlýleikanum inn í rýmið,“ útskýrir Soffía Dögg.
Flokkun á leikföngum spilaði stórt hlutverk í breytingunum og límmiðar voru svo notaðir til að merkja allar hirslurnar, allt á nú sinn stað í herberginu. Bast ljósakróna, tvö eins rúm og motta á gólfið náði svo að tengja allt rýmið saman. Stelpuherbergið var orðið að systkinaherbergi.

„Þetta er bara ótrúlega flott,“ voru fyrstu viðbrögð Önnu Sigríðar en hún tók andköf þegar hún kom inn í barnaherbergið.

Útkomuna má sjá í þættinum í spilaranum hér ofar í fréttinni. Í þættinum gerði Soffía Dögg einnig breytingar á stofunni og svæðinu undir stiganum. Geymsla varð þar að draumkenndu barnahorni og sjón er sögu ríkari.
Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús verður hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+.