Björg Eva Erlendsdóttir er framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og hún vísar þessu alfarið á bug í samtali við Vísi.
„Auðvitað ekki. Á skrifstofu Vg starfa nú auk mín, Anna Lísa Björnsdóttir, Berglind Häsler og Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm. Á skrifstofu þingflokks eru Hulda Hólmkelsdóttir, framkvæmdastjóri, og ritararnir Bjarki Hjörleifsson og Leifur Valentín Gunnarsson lögfræðingur,“ segir Björg Eva. Og hún bætir því við að henni þætti fróðlegt að sjá sannanir fyrir þessu.
Gunnar Smári segist ekki vilja né geta upplýst um það hverjir nákvæmlega eru þarna á ferð. „Ég frétti þetta úr þannig átt. En flokkarnir eru með digra sjóði og geta gert allskonar.“
Segist ekki með neinar nettröllabeinagrindur í sínum skápum
Björg Eva segir spurð það hins vegar svo að öll laun og verktakagreiðslur séu uppi á borðum hjá Vg. Það séu kosningastjórar og yfirleitt einn í hverju kjördæmi á launum, stundum tveir í hálfu starfi.

Aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur formanns flokksins er mikið með einnig í kosningabaráttunni og Steinþór Rafn Matthíasson grafískur hönnuður í Konsept, fær verktakagreiðslur, að sögn Bjargar Evu sem segist ekki vera með neinar beinagrindur af nettröllum í sínum skápum.
Björg Eva rekur í sínum svörum að á launaskrá hafi verið verktakar í þýðingum, táknmálstúlkun, svörun spurninga, viðburðastjórar á fundum, fólk í fjáröflun. „Allt Vg-félagar, nema kannski einn og einn táknmálstúlkur eða tæknimaður. Og flestir á greiðslum sem er táknrænar frekar en kaup. Rest eru sjálfboðaliðar,“
segir Björg Eva sem tekur fram að hún ætli ekki að rífast við Gunnar Smára um þessa „fyrirlitlegu ásökun“.
En það sé svo að framkvæmdastjórar flokkanna hafi verið að vinna gegn nafnlausu níði og tröllaskap á samfélagsmiðlum eftir bestu getu í langan tíma; bæta lagaumhverfi stjórnmálaflokka til að sporna gegn þessum óskunda.
Með ofstopa og leiðindi
Margvísleg umræða hefur farið fram um falsfréttir og óáreiðanleika af ýmsu tagi sem vart verður á samfélagsmiðlum í tengslum við kosningar. Og þá að gerð séu út af flokkum og hagsmunaaðilum svokölluð tröll til að brengla umræðu, afvegaleiða og spilla. Gunnar Smári skrifar pistil á Facebook-síðu Sósíalistaflokksins, sem er býsna virkur vettvangur, þar sem hann telur engan vafa leika á því að þetta sé stundað af kappi á Íslandi. Slík tröll mega þá heita lýðræðislegir hryðjuverkamenn en hér er um alþjóðlegan vanda að ræða.
„Fyrir síðustu kosningar eltu mig uppi hér á Facebook fólk sem ég síðar frétti að hefðu verið á launum hjá VG við að spilla umræðu á samfélagsmiðlum, með ofstopa og leiðindum ef annað virkaði ekki,“ segir Gunnar Smári.
Víðtækur vandi að mati Gunnars Smára
Og að fyrir þessu séu ýmsar ástæður:
„En sú helst að ég sagði um leið og boðað var til kosninga að Sjálfstæðisflokkur og VG stefndu að ríkisstjórn.“

Þetta er ekki bundið einvörðungu við Vg að mati Gunnars Smára því honum sýnist að á vettvangi Sósíalista séu nokkrir mættir í þessum sama tilgangi:
„Yfirleitt er mættur hér í einhver af fyrstu kommentunum varðhundar Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks ... jafnvel Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi með allskyns útúrsnúning og leiðindi, látandi sem venjuleg heilbrigð sósíalísk alþýðusjónarmið um samfélagið gangi á skjön við lögmál náttúrunnar og/eða góða siði.“