Fótbolti

Sjáðu flugeldasýningu United og hvernig Saka kom Arsenal úr miklu klandri

Sindri Sverrisson skrifar
Edinson Cavani hleypur til Paul Pogba og fagnar marki gegn Roma í 6-2 sigri Manchester United í gær.
Edinson Cavani hleypur til Paul Pogba og fagnar marki gegn Roma í 6-2 sigri Manchester United í gær. AP/Jon Super

Manchester United bauð upp á flugeldasýningu í seinni hálfleik gegn Roma í gær og Bukayo Saka bjargaði Arsenal úr afar erfiðri stöðu gegn Villarreal á Spáni. Mörkin og rauðu spjöldin má sjá hér á Vísi.

United vann leikinn gegn Roma 6-2 eftir að hafa verið 2-1 undir í hálfleik. Edinson Cavani skoraði tvö mörk fyrir United, átti tvær stoðsendingar og fiskaði víti.

Arsenal lenti 2-0 undir gegn Villarreal og missti Dani Ceballos af velli með rautt spjald en leikurinn endaði þó 2-1.

Bruno Fernandes kom United yfir með snotru marki eftir sendingu Cavanis. Roma náði hins vegar að jafna metin eftir að víti var dæmt á Paul Pogba fyrir að fá boltann í höndina. Lorenzo Pellegrini skoraði úr spyrnunni.

Roma komst svo yfir með marki Edins Dzeko og útlitið dökkt fyrir United í hálfleik. Snemma í seinni hálfleik skoraði Cavani hins vegar tvö mörk og kom United yfir.

Gamli United-maðurinn, Chris Smalling, fékk svo dæmda á sig vítaspyrnu fyrir brot á Cavani og Fernandes skoraði úr spyrnunni. Paul Pogba skoraði fimmta mark United með skalla eftir sendingu Fernandes, og Mason Greenwood innsiglaði öruggan sigur etir sendingu frá Cavani.

Manu Trigueros og Raul Albiol komu Villarreal í 2-0 á fyrsta hálftímanum gegn Arsenal. Staða enska liðsins versnaði svo enn þegar Dani Ceballos fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 57. mínútu. 

Bukayo Saka lagaði stöðu Arsenal hins vegar til muna þegar hann náði í vítaspyrnu sem Nicolas Pepe skoraði úr, á 73. mínútu. Jafnt varð í liðum skömmu síðar þegar Etienne Capoue var rekinn af velli fyrir brot á Saka en fleiri mörk voru ekki skoruð.

Seinni undanúrslitaleikirnir eru næsta fimmtudagskvöld.


Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×