Í nýjasta þættinum af Skreytum hús tekur Soffía Dögg í gegn stofu á skrautlegu og skemmtilegu heimili í Reykjavík. Það átti að skipta út öllu.

„Skipta um gólfefni, mála, skipta um gardínur. Mér vantar bara að fríska upp á,“ sagði Helga um það sem Soffía Dögg mátti gera í rýminu.
„Allt út og allt inn,“ var svarið sem hún fékk við því frá þáttastjórnandanum. Valgerður Helga vildi einfaldlega byrja upp á nýtt og skipta út nánast öllum húsgögnunum.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og eins og alltaf mælum við með því að þú horfir á þáttinn áður en þú lest áfram.
Kominn tími á breytingu
„Stofan er búin að vera eins í níu ár og það er alveg komin tími á að breyta,“ sagði Valgerður Helga áður en farið var af stað í framkvæmdirnar.
„Ég mála einhvern veginn alltaf allt hvítt en ég er alveg opin fyrir öllu.“
Hún vildi notalegan lit á rýmið en ekki of dökkan. Nýr litur á veggina gerði mikla breytingu og passaði líka vel við nýja gólfefnið.

„Það munar svo ótrúlega miklu að fá þetta ljósa og fallega parket inn, það stækkar rýmið bara um helming.“
Svo þurfti að finna nýjan sófa sem passaði inn í þessa gjörbreyttu stofu.

Soffía Dögg leyfði öllum mununum hennar Valgerðar Helgu að njóta sín í hillum í stofunni og gerði það stofuna persónulegri um leið.
Svo gerði hún skemmtilegar breytingar á sjónvarpsskenk og glerskáp með því að setja hlýlegan við á þessi svörtu húsgögn.

„Mér fannst æðislega gaman að labba hérna inn,“ sagði Valgerður Helga eftir að hún hafði fengið að sjá breytinguna.
„Það sem kom mér mest á óvart var að mér finnst stofan hafa stækkað.“
Soffía Dögg segir að það hafi verið gaman að fá traust til að koma húseiganda svona á óvart, sérstaklega þar sem hún hafi verið óhrædd við að láta ýta sér út fyrir þægindarammann.

„Mér finnst þetta bara æði, ég er mjög sæl með þetta.“
Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús er hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+ efnisveituna.