
Dr. Ólafur hefur lengst allra fræðimanna rannsakað kosningar og kosningahegðun íslenskra kjósenda og verið einn helsti útskýrandi kosningaúrslita undanfarna áratugi. Hann hefur sent inn umsögn um frumvarp forseta Alþingis til kosningalaga sem ætlað er að samræma öll lög um kosningar til Alþingis, sveitarstjórna og forseta.
Ólafur gagnrýnir að í frumvarpinu séu ekki gerðar ráðstafanir til að jafna þingsæti milli flokka. En í mörgum undanförnum kosningum hafi það markmið ekki náðst.

Frumvarp Steingríms byggir á samkomulagi milli formanna allra flokka og felur í sér umtalsverðar breytingar. En eins og allaf þegar breyta á kosningalögum felur það í sér mikla jafnvægislist þannig að allir flokkar geti við unað og telji ekki á hlut þeirra gengið. Miðað við síðustu fylgiskönnun Gallups fengi Sjálfstæðisflokkurinn einum þingmanni of mikið miðað við hlutfallslegt fylgi flokkanna á landsvísu og hefur þann þingmann af Samfylkingunni.
Flokkar þurfa að fá fimm prósenta fylgi á landsvísu til að ná inn kjördæmakjörnum þingmanni. Flokkur fólksins mældist með 4,7 prósenta fylgi í fyrrnefndri könnun Gallups og fengi einn kjördæmakkjörinn þingmann. Ef flokkurinn fengi hins vegar 0,3 prósentum meira fylgi og búið væri að fjölga uppbótarþingmönnum á kostnað kjördæmakjörinna fengi flokkurinn hins vegar einnig tvo uppbótarþingmenn. Sjálfstæisflokkurinn missti tvo og Framsóknarflokkurinn einn.
Víglínan er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 17:40 og fer fljótlega inn á Stöð 2 + að lokinni útsendingu.