Líkið fannst fyrir tilviljun þar sem bæjarstjóri Maaseik var í hjólaferð um Hoge Kempen þjóðgarðinn, þar sem Conings hefur verið leitað síðastliðinn mánuð, þegar hann fann sterka lykt.
Allt bendir til þess að Conings hafi skotið sig í höfuðið. Hann er sagður hafa skilið eftir bréf þar sem stóð að hann „gæti ekki lifað lengur í samfélagi þar sem stjórnmálamenn og veirufræðingar hafa tekið allt af okkur“. Áður hafði hann hótað Marc Van Ranst, forsvarsmanni sóttvarna í Belgíu.
Conings sem er 46 ára gamall hermaður og skotþjálfi, er sagður hafa látið greipar sópa í vopnageymslu herstöðvarinnar og látið sig hverfa þann 17. maí síðastliðinn.
Mikil leit hefur staðið yfir en lögreglan biðlaði til almennings að nálgast Conings ekki, þar sem hann var talinn vera þungvopnaður. Bifreið hans fannst nærri skógi í Hoge Kempen þjóðgarðinum. Hún var full af vopnum og greindu blaðamenn á staðnum frá því að þeir hefði heyrt skotum hleypt af inni í skóginum.