„Við fengum fyrsta símtalið í síðustu viku. Það var aðili sem hafði horft á Kötlu og vildi spyrja alls kyns spurninga, hvort það væri hægt að komast upp á jökulinn og hvernig væri hægt að komast að þessum íshellum. Þannig ég held að þetta eigi klárlega eftir að hafa jákvæð áhrif,“ segir Anna.
Hún telur Vík hafa komið vel út þrátt fyrir drungalegt yfirbragð. „Það kemur mér í raun og veru á óvart, á mjög jákvæðan hátt, hvað umgjörð Víkur nýtur sín vel. Þó svo að allt sé á kafi í ösku þá nær nú samt einhvern veginn fegurðin í Víkinni að njóta sín.“
Þá nefnir hún að ströndin, Reynisdrangar, Reynisfjall og kirkjan hafi komið sérstaklega vel út að hennar mati. Víkurbúar séu mjög ánægðir með þættina. „Ég held að það séu allir búnir að horfa á þættina. Ég held að allir íbúar hafi tekið þetta bara hratt í nefið.“

Víkurbúar fylgdust spenntir með
Tökuliðið gisti á Hótel Kötlu á meðan tökur stóðu yfir í apríl, maí og júní í fyrra. „Það var bara mjög gaman. Þau voru svolítið með hótelið útaf fyrir sig. Það sem var kannski svona mest ögrandi fyrir þau er að þau voru að taka upp á bjartasta tíma ársins, þannig tökurnar fóru helst fram seint á kvöldin og fram í nóttina. Þannig það var stundum morgunmatur hér alveg frá sex og morgnana og fram til þrjú á daginn, eftir því hvenær fólk vaknaði.“
Anna segir tökurnar hafa farið skipulega fram og snyrtimennskan hafi verið í fyrirúmi. „Það var bara ákveðinn hluti bæjarins sem var sviðsmynd. Þeir voru líka með teymi sem þreif allt á eftir og það var mikil áhersla lögð á að skilja vel svæðið.“

Íbúar fylgdust spenntir með tökunum og segir Anna Víkurbúa hafa verið duglega að deila minningum frá tökutímabilinu á Facebook undanfarið og að mikil stemming hafi myndast við frumsýningu þáttanna.
Anna segir sumarið líta vel út. Hún telur þættina hafa kveikt forvitni og áhuga fólks um Vík, en að góð veðurspáin spili einnig inn í. „Við sjáum það alveg vel í bókunum að það er að bókast vel inn, bæði Íslendingar og ferðamenn. Þannig að við erum bjartsýn hvað varðar sumarið og haustið.“