Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Vinna á vettvangi hélt áfram í dag en til rannsóknar er hver orsök skriðunnar voru. Uppbyggingu verður jafnframt haldið áfram næstu daga. Húsin tvö sem urðu fyrir skriðunni eru töluvert skemmd.
Skriðan féll úr barði, en yfir því liggur gata, og á húsin tvö síðdegis á þriðjudag. Vegurinn sem skriðan féll úr er þá nokkuð skemmdur enda risa hola þar sem skriðan rann undan honum.
Nefndin mun funda aftur síðdegis á morgun og tilkynna um frekari ákvarðanir í kjölfar fundarins. Hún ítrekar þó beiðni til almennings um að virða lokanir þar sem þær eru í gildi.