Patrekur, hinn vörpulegi handknattleikskappi og þjálfari, sem ævinlega er kallaður Patti, var sæmdur þessari viðurkenningu af hálfu Maria Rotheiser-Scotti, sendiherra Austurríkis. Sá sem greinir frá þessu er sjálfur forsetinn, Guðni Th. Jóhannesson, á Facebooksíðu forsetaembættisins.
En svo skemmtilega vill til, og sem alkunna er, þá eru þeir Guðni og Patti bræður, báðir grjótharðir Stjörnumenn þó leiðir Patta hafi legið víðar, sem atvinnumaður í handbolta og seinna mikils metinn þjálfari.
„Ég átti í dag kveðjufund með sendiherra Austurríkis á Íslandi, Maria Rotheiser-Scotti (með aðsetur í Kaupmannahöfn). Að honum loknum sæmdi sendiherrann Patrek Jóhannesson, bróður minn, silfurmerki Austurríkis fyrir störf í þágu íþrótta þar í landi,“ segir Guðni.
Forsetinn tiltekur að Patti hafi verið þjálfari austurríska karlalandsliðsins í handknattleik árin 2011–2019 og náði liðið afar góðum árangri undir hans stjórn, komst tvisvar í úrslit heimsmeistaramótsins og eins oft í úrslit Evrópumótins.
„Á myndinni klappa ég honum lof í lófa fyrir þakkarræðu að orðuveitingunni lokinni og fylgjast þær Eliza og sendiherrann með,“ segir forseti Íslands og ljóst að þetta hefur verið ánægjuleg stund sem þeir bræður áttu á Bessastöðum.