Umfangsmesta mál sem ratað hefur á borð landlæknis Nadine Guðrún Yaghi skrifar 8. júlí 2021 15:15 Alma Möller landlæknir segir að næstu vikur fari í að láta sjúklinga vita. Vísir/Vilhelm Landlæknir segir mál háls, nef- eyrnalæknis sem sviptur var starfsleyfi fyrir að framkvæma fjölda ónauðsynlegra skurðaðgerða vera umfangsmesta mál sem komið hefur á borð embættisins. Embættið skoði nú hvort máli læknisins verði vísað til lögreglu. Landspítalinn hafði sett lækninn í bann við skurðstofuvinnu en það ljáðist að tilkynna um það til landlæknis. „
Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál og sambærileg mál hafa ekki komið áður til kasta okkar,“ segir Alma Möller landlæknir. Læknirinn framkvæmdi að mati óháðra sérfræðinga tólf ónauðsynlegar aðgerðir, þar á meðal á fimmtán og tveggja ára börnum. Hann er talinn hafa stefnt sjúklingum í hættu. Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun landlæknis um að svipta lækninn starfsleyfinu en úrskurður ráðuneytisins var birtur í morgun. „Við gerðum auðvitað mjög umfangsmikla rannsókn og það er léttir að ráðuneytið hafi nú staðfest okkar ákvarðanir, bæði að rannsóknin sem leiddi til þess að læknirinn var sviptur lækningaleyfi hafi verið gerð á viðunandi hátt og eins að öll stjórnsýsla hafi verið rétt,“ segir Alma. Í skýrslu embættis landlæknis kemur fram a alvarlegast hafi verið að læknirinn hafi framkvæmt tólf aðgerðir án viðurkenndra ábendinga en þá framkvæmdi hann einnig óeðlilega margar aðgerðir. Alls framkvæmdi hann 53 ónefndar aðgerðir á þriggja mánaða tímabili en aðrir læknar á sömu stofu framkvæmdu núll til tvær aðgerðir af sama toga á því tímabili. Embætti landlæknis gerði athugasemdir við starfshætti og verklag læknisins í 22 af aðgerðunum 53. Landspítali lét embætti landlæknis ekki vita Læknirinn starfaði á Handlæknastöðinni Glæsibæ en heimildir fréttastofu herma að hann hafi áður starfað á Landspítalanum. Í úrskurði heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að hann hafi leynt Handlæknastöðinni því að hann hafi verið settur í bann á ótilgreindri sjúkrastofnun, sem samkvæmt heimildum fréttastofu er Landspítalinn, í kjölfar veikinda. „Það er þannig að þessi stofnun sem er nefnd X í úrskurðinum lét embætti landlæknis ekki vita. Við litum það alvarlegum augum og leituðum svara hjá viðkomandi stofnun og þar voru ákveðin svör en það var beðist velvirðingar á þessu og fram kom að stofnunin myndi fara yfir sína verkferla. Við hefðum auðvitað kosið að hafa verið látin vita fyrr,“ segir Alma. Þá hefði verið hægt að bregaðast við fyrr. Hvers konar aðgerðir voru þetta? „Það kemur ekki fram í úrskurðinum og ég get ekki tjáð mig um annað en þar kemur fram þannig að þetta eru ákveðnar skurðaðgerðir og athugasemdir kollega hans lutu að ákveðnum aðgerðum og þær voru skoðaðar sérstaklega,“ segir Alma. Tugir sjúklinga verða upplýstir á næstu vikum Í úrskurði heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að óháðir sérfræðingarnir hafi skoðað 53 aðgerðir á tímabilinu 1. september 2019 til 30. nóvember sama ár, eða um fjórðung af aðgerðum læknisins á tímabilinu. Ætliði að fara í umfangsmeiri rannsókn? „Okkur fannst mjög mikilvægt að ljúka þessum hluta og fá þennan úrskurð ráðuneytisins um að rétt hafi verið staðið að þessu hjá okkur. Nú hefst annar hluti málsins og hann er einmitt að upplýsa sjúklinga, þannig við munum hafa samband við alla þá sjúklinga sem rannsóknin náði til og líka yfir lengra tímabil og bjóða þeim sem hafa áhyggjur af hafa samband við okkar,“ segir Alma og bætir við að það sé umfangsmikið verk að hafa samband við sjúklingana. Það muni taka einhverjar vikur eða jafnvel mánuði. Svæfing alltaf áhætta Alma segist ekki geta fullyrt hvort ónauðsynlegu aðgerðirnar hafi haft áhrif á heilsu fólksins. „Það er auðvitað alltaf slæmt ef það er verið að gera aðgerðir sem ekki er þörf á, það er inngrip í líkamann og svæfing er alltaf áhætta, þannig að auðvitað á aldrei að gera aðgerð nema nauðsyn krefji“ segir Alma. Hún segir að fyrst og fremst hafi verið um að ræða aðgerðir á fullorðnu fólki. „Það var einn einstaklingur 15 ára en síðan kom ábending um tveggja ára barn en það var eldra mál,“ segir Alma. Skoða hvort málið verði sent til lögreglu Mun læknirinn þurfa að sæta frekari afleiðingum? „Ekki að svo stöddu. Það úrræði sem er þyngst hjá embættinu að svipta einhvern starfsleyfi,“ segir Alma. Óljóst sé hvort málið sé saknæmt og það eigi eftir að taka endanlega afstöðu til þess hvort málið verið tilkynnt til lögreglu. „Það er ekki á verksviði embættisins að dæma um það. Það er ekkert í lögum um landlækni um tilkynningarskyldu nema andlát verði en þetta er eitthvað sem við erum að skoða,“ segir Alma. En af hverju gera menn svona? „Það er nú þannig að menn líta hluti mismunandi augum. Þetta hefur ekki verið rannsakað hjá okkur en eins og fram kemur í úrskurðinum teljum við að þarna bresti faglega hæfni og dómgreind,“ segir Alma. Hér að neðan má sjá viðtalið við Ölmu í heild sinni.
Heilbrigðismál Landspítalinn Læknir sviptur leyfi vegna ónauðsynlegra aðgerða Tengdar fréttir Fjöldi ónauðsynlegra aðgerða þar á meðal á tveggja ára barni Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun embættis landlæknis um að svipta háls, nef- og eyrnalækni starfsleyfi sem læknir fyrir að gera ónauðsynlegar skurðaðgerðir. Læknirinn framkvæmdi að mati óháðra sérfræðinga tólf ónauðsynlegar aðgerðir, þar á meðal á tveggja ára barni. Hann er talinn hafa stefnt sjúklingum í hættu. 8. júlí 2021 10:43 Sviptur læknaleyfi eftir að upp komst um ónauðsynlegar aðgerðir Háls, nef- og eyrnalæknir hefur verið sviptur læknaleyfi vegna ónauðsynlegra skurðaðgerða, meðal annars á börnum. Embætti landlæknis réðst í umfangsmikla rannsókn vegna málsins. 7. júlí 2021 18:31 Mest lesið Kona í gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát Innlent Ætla í „öfluga“ yfirtöku á Gasaströndinni Erlent Fölsuð verk til sýnis á Listasafni Íslands Innlent Komugjöld á ferðamenn séu út í hött Innlent Nemendafélag Kvikmyndaskóla Íslands: „Þetta er ekki eitthvað sem við viljum“ Innlent Fundi Bandaríkjanna og Íran lýst sem „uppbyggilegum“ Erlent Myglaður laukur í poka og lamba eistu á matseðlinum Innlent Eldur kom upp í seilingarfjarlægð frá gashylkjum og þvottaefni Innlent „Ég hef ekkert með einkaskóla að gera“ Innlent Búið að slökkva eldinn í Hlíðunum Innlent Fleiri fréttir Ævintýri um allan heim biðu ungra íslenskra flugmanna Þrjú innbrot í miðbænum Kona í gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát Myglaður laukur í poka og lamba eistu á matseðlinum Nemendafélag Kvikmyndaskóla Íslands: „Þetta er ekki eitthvað sem við viljum“ Fölsuð verk til sýnis á Listasafni Íslands Jarðskjálftahrina í Ljósufjallakerfinu Komugjöld á ferðamenn séu út í hött Fyrirhuguð komugjöld á óvissutíma og fölsuð listaverk til sýnis Búið að slökkva eldinn í Hlíðunum Eldur kom upp í seilingarfjarlægð frá gashylkjum og þvottaefni „Vinnan er rétt að hefjast“ Þyrlusveitin kölluð út á mesta forgangi vegna leka um borð í bát Bíll hafnaði á hliðinni í miðborginni „Ég hef ekkert með einkaskóla að gera“ Ætli það sé heitt vatn í landi Hallanda í Flóahreppi? Fjórir drengir sem voru í bílnum slösuðust allir Bein útsending: Samfylkingin 25 ára Mikið högg fyrir nærsamfélagið Skemmdarverk unnin á Jónshúsi í skjóli nætur Gripinn við kókaínsmygl á nítjánda aldursári Tæplega þrjátíu ungmenni á leið í samkvæmi þegar slysið varð Réttindalaus dreginn af öðrum Fjórir slasaðir eftir alvarlegt slys Endurskoða varðveislu á upptökum lögreglu eftir að gögnum var eytt Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Sjá meira
Fjöldi ónauðsynlegra aðgerða þar á meðal á tveggja ára barni Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun embættis landlæknis um að svipta háls, nef- og eyrnalækni starfsleyfi sem læknir fyrir að gera ónauðsynlegar skurðaðgerðir. Læknirinn framkvæmdi að mati óháðra sérfræðinga tólf ónauðsynlegar aðgerðir, þar á meðal á tveggja ára barni. Hann er talinn hafa stefnt sjúklingum í hættu. 8. júlí 2021 10:43
Sviptur læknaleyfi eftir að upp komst um ónauðsynlegar aðgerðir Háls, nef- og eyrnalæknir hefur verið sviptur læknaleyfi vegna ónauðsynlegra skurðaðgerða, meðal annars á börnum. Embætti landlæknis réðst í umfangsmikla rannsókn vegna málsins. 7. júlí 2021 18:31