Úrhellisrigningarnar herjuðu í vikunni á Henan hérað og höfuðborg þess Zhengzhou en hafa síðan fært sig norðar. Borgir og bæir norðar í landinu hafa því fengið að finna fyrir veðurofsanum, fólk hefur komið sér í sjálf heldu án rafmagns eða drykkjarvatns og hefur þetta meðal annars haft mikil áhrif á sjúkrahús.
„Við gátum ekki flúið heimilið vegna þess að amma mín, sem er fötluð, gat ekki farið af heimilinu,“ hefur fréttastofa AFP eftir sextán ára gamalli stelpu, sem kölluð er Zhang, en hún bætti því við að heimili hennar í Gongyi væri á kafi í vatni. „Ég var mjög hrædd um að ég myndi drukkna.“
Samkvæmt fréttaflutningi staðarmiðla hefur borgin Xinxiang, þar sem meira en 5,8 milljónir manns búa, orðið verst fyrir barinu á rigningunum. Meira en 260 mm af úrkomu féll á tveggja klukkustunda tímabili en talað er um að úrhellið sé það mesta í þúsund ár.
Tugum þúsunda hefur verið bjargað úr smáþorpum og af bóndabæjum. Yfirvöld segjast hafa náð að koma um níu þúsund manns í öruggt skjól en enn séu 19 þúsund talin í hættu.