Leikurinn í sjálfu sér var nokkuð góður hjá heimamönnum sem höfðu verið á ágætis skriði undanfarið eftir erfiða byrjun í Pepsi Max deildinni. Davíð Þór viðurkenndi að hann væri nokkuð sáttur með frammistöðu sinna manna og að þetta væri hluti af leiðinni í að komast nær toppliðunum á Skandinavíu.
Leiðin mætti þó vera styttri að hans mati. Viðtalið má sjá hér að neðan.
„Það er oft talað um að munurinn á atvinnumannaliði og hálfatvinnumannaliði eins og við erum liggur þarna. Það virðist vera þannig og maður lenti oft í þessu sem leikmaður að spila á móti liði sem var miklu sterkara á pappírunum, fannst við með leikinn alveg í skefjum eins og í dag en svo missir maður einbeitingu í smástund og þeir refsa fyrir það.“
„Svona er fótbolti í dag og við þurfum að halda áfram að vinna í því að koma okkur nær þessum liðum í Skandinavíu þó svo að leiðin sé örlítið lengi en maður hefði viljað.“
Varðandi leikinn í heild
„Fannst leikurinn einhverju leyti fara frá okkur því við nýttum ekki tvö góð færi sem við fáum í stöðunni 0-0. Eitt undir lok fyrri hálfleiks og annað í upphafi síðari hálfleiks. Við vissum alveg að það yrði erfitt að verjast svona lágt allan leikinn eins og við ætluðum að gera.“
„Við lokuðum frábærlega á þá í fyrri hálfleik fannst mér. Svo refsa þeir okkur, við náum ekki alveg að fylgja nægilega vel eftir í varnarleiknum. Þegar þeir komust yfir misstum við aðeins trúnna fannst mér í smá tíma,“ sagði Davíð Þór strax eftir leik.
Varðandi mark fyrra mark gestanna
„Held það sé alltaf erfitt þegar þú færð á þig mark eftir að leggja svona svakalega mikla vinnu á þig. Ert búinn að sjá til þess að þeir hafi varla færi fram að því í leiknum þá er þetta erfitt þegar þú færð á þig mark eftir að þú missir einbeitingu í smástund. Það er erfitt að vinna sig upp úr því. Við náttúrulega fáum á okkur annað mark þar sem Gunni ver frábærlega en við náum ekki að hreinsa þrátt fyrir að vera nokkrir í kringum boltann.“
„Mér fannst við samt í seinni hluta síðari hálfleiks vera mjög öflugir og menn voru ekki búnir að gefast upp. Þeir sem komu inn á voru mjög ferskir fannst mér, sköpuðu mikinn usla. Frábært að sjá að menn væru tilbúnir að koma inn og spila á þessu getustigi sem er ansi hátt,“ sagði Davíð Þór að lokum.