Skoðun

Framleiðni eða þjónusta, neytendur eða sjúklingar

Drífa Snædal skrifar

Enn á ný ratar orðfæri markaðarins inn í umræður um heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Umræða um „framleiðni“ í heilbrigðisþjónustu minnir óneitanlega á þá tíma þegar stjórnmálamenn töluðu fyrir því að efla „kostnaðarvitund neytenda” og vísuðu þar til sjúklinga og annarra skjólstæðinga okkar sameiginlegu kerfa; veika og gamla fólksins sem átti að gera ábyrgt fyrir einstaka útgjöldum.

Ef við ætlum að setja orðfæri markaðarins á heilbrigðismál þá litar það viðhorf, stefnumótun og að lokum ákvarðanir. Það er til dæmis ekkert mál að auka „framleiðni“ í heilbrigðisþjónustu og við þekkjum það frá markaðsdrifnum kerfum sem jafnframt eru þau dýrustu í heimi. Þar er til dæmis hægt að senda fólk í röntgen frá toppi til táar vegna magakveisu, það myndi auka „framleiðni“. Svo er hægt framleiða meira með því að bjóða öldruðum á hjúkrunarheimilum upp á bað oftar í viku og þá gegn rausnarlegri greiðslu. Eflaust er framleiðnin efst í huga á hjúkrunarheimilinu þar sem nú er farið að rukka fólk fyrir fylgd í klippingu eða fótsnyrtingu, sem þó er innan sömu byggingar.

Með þessu markaðsorðfæri er sjónum líka beint frá því sem liggur í augum uppi: fjárframlög til heilbrigðismála hafa ekki aukist í takt við fjölgun sjúklinga. Okkur hefur fjölgað, fólk lifir lengur og þarf aukna þjónustu, auk þess sem álag vegna stóraukins fjölda ferðamanna síðustu ár hefur sett sitt mark á kerfin okkar. Tölur Hagstofunnar sýna okkur að sjúkrarýmum miðað við íbúafjölda hér á landi hefur fækkað taktfast frá 2007 til 2019; úr 335 rýmum á hverja 100 þúsund íbúa í 227 rými. Hjúkrunarrýmum og endurhæfingarýmum hefur sömuleiðis fækkað verulega á sama tímabili ef miðað er við fólksfjölda. Og samhliða hefur verið dregið svo úr heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni að það er engin leið að skilja það öðruvísi en sem hreina mismunun eftir búsetu. Þegar stjórnmálamenn tala um heilbrigðiskerfið sem botnlausa hít er vert að hafa þetta í huga.

Það er ljóst að heilbrigðismálin eru eitt af stóru kosningamálunum sem tekist verður á um í aðdraganda kosninganna. Þar mun öllu máli skipta hvort við ræðum þau út frá markaðslegu sjónarhorni eða út frá heilbrigði og þjónustu fólks af holdi og blóði. Mörg verðum við veik á lífsleiðinni og þurfum á þjónustunni að halda og velflest verðum við einhvern tímann öldruð. Höfum það hugfast nú þegar við tökum stefnumarkandi ákvarðanir til framtíðar.

Góða helgi.

Höfundur er forseti ASÍ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×